Piper Lisa Perabo Hér koma svolitlar upplýsingar um Piper Lisu Perabo, en hún lék t.d. í Coyote Ugly. Ég fann þetta á netinu og þýddi það.

Hún fæddist 21.október 1977 í Toms River, New Jersey. Mamma hennar er norsk og pabbi hennar er Portúgali og vinnur sem Prófesor í ensku og vinnur í Toms River High School North, þar sem Piper útskrifaðist. Ákveðinn manneskja sem þekkti hana í menntaskóla lýsir henni sem “elskulegri, almennilegri og hlýlegri stelpu”. Eftir menntaskólann lærði hún leiklist í Háskólanum í Ohio þar sem hún útskrifaðist 1998 með BFA gráðu(hvað sem það nú er) í leiklist.

Fyrsta stóra myndin sem Piper lék í hét Whiteboyz(1999) þar sem hún lék kærustu rappara sem var glæpamaður. Hún fékk líka annað stórt klutverk í myndinni Coyote Ugly þar sem hún lék stelpu sem flutti frá New Jersey til New York til að verða lagahöfundur. Hún vinnur á bar, þar sem hún bíður eiginlega eftir stóra tækifærinu. Þetta minnir nefninlega á alvöru líf Piper því hún flutti frá New Jersey til New York til að reyna fyrir sér í kvikmyndabransanum.

Piper á tvo yngri bræður sem heita Adam og Noah. Adam fór í Háskólnn í Ohio(eins og Piper), hann er líka mjög hæfileikaríkur, syngur og leikur.

Sumarið 2000 er ef til vill það eftirminnilegasta í lífi Piper. Þá var alveg nóg að gera hjá henni. Þá fékk hún hlutverkið í Coyote Ugly , Rocky and Bullwinkle og svo líka í myndum svokallaðar vixen-laden bar myndir. Það má segja að þá hafi hún orðið uppgvötuð þetta sumar.

Piper byrjaði fljótlega að vinna í leikhúsi þar sem var verið að setja upp “Our Town” & “Arms and the Man”. En það eru víst myndirnar Coyote Ugly og svo Slap her… She´s french! (2002) sem skutu þessari frábæru leikkonu upp á stjörnuhinininn. ;D