Chad Murray Chad Murray eða Chad Michael Murray leikur meðal annars hann Charlie í Dawson’s Creek:) Hérna eru smá upplýsingar um hann.

Fullt nafn: Chad Michael Murray
Afmælisdagur: 24 ágúst
Fæddur: 1981 í Buffalo, New York, USA
Hæð: 6’ eða 180 cm.

Þegar Chad var 4. eða 5. ára framkvæmdi hann grínatriði og söng sína eigin söngva fyrir fjölskyldu sína. Hann á 3 bræður, 1 hálfbróður og eina hálfsystur.
Þegar hann var 15 ára slasaðist hann í ruðningi, og lenti á spítala þar sem hjúkka hvatti hann til að fara í módel bransann. Tveimur árum seinna fékk hann að fara á eitthvað fræðinámskeið frá módel umboðsskrifstofu í Buffalo til að fylgjast með þingi um módel störf. Þar hitti hann örlög sín þegar umboðsmaður frá Los Angeles benti honum á að snúa sér að draumnum sínum, leiklistinni.

Chad hefur verið í auglýsingum fyrir Sketchers, Tommy Hilfiger og Gucci. Hann ætlaði til Hollywood og var að styrkja sig með því að taka að sér þessi módel störf. Þegar hann kom svo til Hollywood, árið 1999 fékk hann nokkur gestahlutverk í sjónvarpsþáttum. Þá fékk hann kallið sem hann hafði alltaf verið að bíða eftir, hann fékk hlutverk í sjónvarpsþáttunum Gilmore Girls. Chad var rétti maðurinn í hlutverkið, hafði allt sem þurfti.

Chad dáist af leikhæfileikum Ed Norton, Leonardo DiCaprio, Al Pacino og Robert DiNiro og þeir hafa áhrif á leik hans.
Chad er mikill íþróttamaður og lifir heilsusamlegu lífi. Þegar hann var í skóla, spilaði hann sína uppáhaldsíþrótt, ruðning, en heldur sér núna í formi með að fara í líkamsræktarstöðvar, og stundar inline skating sem ég veit ekki hvað er, spilar fótbolta, blak og körfubolta.
Hann er í fyrirmynd krakka í að nota ekki eiturlyf og í frítíma sínum vinnur hann góðgerðarstarf fyrir börn og unglinga.
Chad er enn einhleypur, en hefur keypt sér hús og fengið sér smáhund sem heitir Gus og mjög sérstakan og hávaðasaman kött sem heitir Jack. Gæludýrin fékk hann sér til að hann myndi ekki sakna stóru fjölskyldunnar sinnar of mikið.

Staðreyndir um Chad

Uppáhaldsgjöf sem Chad hefur fengið frá stelpu er hálsmen sem hann er alltaf með á myndum.

Þegar Chad var í módel bransanum lenti hann í óhappi og nefbrotnaði og þurfti í aðgerð. Það þurfti að laga nefið svo mikið að maður sér mun á því frá því hvernig það leit út áður.

Chad lét fjarlægja smá af görnunum í sér vegna niðurstaðna úr ruðningsmeiðslum og núna getur hann ekki fitnað.

Pabbi hans er flugumferðarstjórnandi og mamma hans yfirgaf fjölskylduna þegar Chad var aðeins 10 ára.

Þegar Chad var spurður um hvað honum fyndist vera nauðsynlegasta umræðuefnið sagði hann: Að krakkar séu laus við fíkniefni. Ég hef alltaf viljað að börn fái tækifæri og möguleika í lífinu.

Myndir og þættir sem hann hefur leikið í:

Dawson’s Creek (1998)
Gilmore Girls (2000)
Freaky Friday (2003)
Lone Ranger (2002)
Aftermath (2001)
Megiddo: The Omega code 2 (2001)
CSI (2000)

Kv. Sweet :)
Játs!