Kate Hudson Eflaust kannist þið flest við leikkonuna sætu Kate Hudson, dóttir Goldie Hawn og Bill Hudson. Þessi stelpa fæddist inní stjörnuheiminn og hefur verið þar síðan…

Alvöru nafn: Kate Garry Hudson

Fædd: 19. apríl, 1979 í Los Angeles

Atvinna: leikkona og módel

Þetta hefur hún sagt um sjálfa sig (í Febrúar ‘99): “Ég hef stórann, litríkann og opinn persónuleika, sem ég held að geri það að verkum að fólk talar oft svona vel um mig. En eftirvæntingin og þrýstingurinn hjá fólki lætur mér stundum líða eins og ég sé undir smásjá, sérstaklega þar sem mamma er sú sem hún er.”

Og þetta: “Ég hef alltaf verið sú sem ég er, og verið ein af fjölskyldunni minni, ekki öðruvísi eða reynt það. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Ég ætla aldrei að reyna að vera önnur en ég er…!”


~Hún er gift Chris Robinson, tónlistarmanni; sögnvari hljómsveitarinnar Black Crowes. En þau giftust 31. Desember árið 2000. Áramótabrúðkaup:)
~Einu sinni var hún svo með leikaranum Eli Craig, syni leikkonunnar Sally Field, en þau voru víst saman í 1 og hálft ár.
~Svo eru þær sögur að hún hafi einverntíma verið með tónlistarmanninu Lenny Kravitz.


Stórfjölskyldan:
~Móðurafi: Edward Rutledge Hawn, tónlistarmaður
~Móðuramma: Laura Hawn, en hún lék smá hlutverk í einni af myndum
Goldie Hawn (dóttur sinnar), en það var myndin Swing Shift and Deceived.
~Pabbi: William Louis Hudson (einnig þekktur sem Bill Hudson), leikari, grínist og tónlistarmaður. Hann giftist Goldie Hawn árið 1976 en þau skildu 1980. Árið ’82 giftist hann svo leikkonunni Cindy Williams. Hafði alltaf mjög lítið samband við Kate.
~Mamma (þarf varla að kynna hana): Goldie Hawn, leikkona fædd 21. nóvember, 1945. Hún hefur verið með leikaranum Kurt Russell (veit ekki hvort þau eru gift) síðan 1982. Kate lítur á Russel og Hawn sem foreldra sína.
~Bróðir: Oliver Hudson, leikari, fæddur ‘76.
~Stjúpbróðir: Boston Russell, fæddur ’80, sonur Kurt Russell og Season Hubley alin upp af Hawn og Russel.
~Hálfbróðir: Wyatt Russell, leikari. Fæddur 10. júlí, 1986, sonur Hawn og Russell.
~Hálfsystir: Emily Hudson dóttir Bill Hudson og Cindy Williams.
~Hálfbróðir: Zachary Hudson sonur Bill Hudson og Cindy Williams

Þessi fjölskylda er nú bara fræg í heildina!!:D




Bróðir hennar, Oliver, segir að þegar hún var lítil, hafi hún alltaf verið að dansa og svifið um, svo hafi hún líka oft verið að leika fyrirsætu, og skoða skápinn hennar mömmu sinnar. Og hann segir að hún geri þetta enn. “Alltaf þegar mamma fer úr bænum, læsir hún skápnum sínum!” segir Oliver.

En Oliver hafði gaman af að stríða henni (eins og margir eldri bræður)…
Oliver var alltaf svo skemmtilegur við hana… kallaði hana “Dúmbó” útaf eyrunum á henni, og einnig “hamarshaus” útaf bilinu á milli augnanna á henni.



Kate hefur leikið í eftirfarandi myndum:

Four Feathers (2001) …. Ethne Eustace

The Cutting Room (2001) …. Chrissy Campbell

Dr. T and the Women (2000) …. Dee Dee Travis

Almost Famous (2000) …. Lady “Penny Lane” Goodman

Gossip (2000/I) …. Naomi Preston

About Adam (2000) …. Lucy

200 Cigarettes (1999) …. Cindy

Ricochet River (1998) …. Lorna

Desert Blue (1998) …. Skye

svo eru þessar myndir væntlanlegar hér á Íslandi frá henni:

How To Lose A Guy …. Andie Anderson

Loosely Based On a True Love Story …. Emma

Le Divorce …. Isabel Walke