Jennifer Love Hewitt Eflaust kannist þið við leikkonuna Jennifer Love Hewitt. En hún lék t.d. í myndinni Heartbreakers sem var á Stöð 2 í gær. Hún er mjög góð leikkona að mínu mati, en hún er bara 24 ára.

Starfar sem: Leikkona, söngkona, og dansari.

Fædd: 21. febrúar, 1979 í Waco, Texas.

Hæð: 5' 3“ (veit því miður ekkert hvað það er margir cm. en hún er a.m.k. ekki svo hávaxin held ég).

Menntun: Laurel Springs High School, í Ojai.

Fjölskylda: Mamma hennar heitir Pat Hewitt og er talmeinafræðingur. Pabbi hennar heitir Tom Hewitt, læknir.
En þau skildu sama ár og Jennifer fæddist.
Svo á hún einn bróðir (32 ára) Todd Hewitt, hnykklæknir.

Kærastar sem vitað er til að hún hafi átt:
Joey Lawrence, leikari
Will Friedle, leikari
Carson Daly, starfar hjá sjónvarpsstöðinni MTV
Rich Cronin, hljómsveitargaur
söngvarinn Enrique Iglesias


Nokkrar staðreyndir um hana…

Bróðir hennar Todd, valdi fyrsta nafnið hennar (Jennifer), útaf eitthverri lítilli stelpu sem hann var hrifinn af. Mamma hennar valdi milli nafnið (Love).

Þegar hún var 10 ára, fór hún í ferðalag með genginu í
'The Texas Show' sem lítið dans og söngva fordæmi.

Þegar hún var 12 ára, söng hún og dansaði í Barbie auglýsingu.

Hún gerði sinn fyrsta geisladisk, Love Songs árið 1992.

Næst gaf hún svo út geisladisk árið sem ber nafnið Let's Go Bang.

Nýjasti diskurinn hennar ber svo hið frumlega nafn Jennifer Love Hewitt.

Johnny Depp og Gwyneth Paltrow eru í miklu uppáhaldi hjá henni.

Hún fékk ekki hlutverkið sem Júlía í Rómeó og Júlíu en Claire Danes fékk það.
Leikstjóranum fannst hún of nútímaleg.

Þetta gæti svo sem alveg eins verið kjaftasaga:
Fór á eitt stefnumót Jonathan Brandis en ákvað að tala aldrei við hann aftur þar sem hann ”fylgdi henni ekki að dyrnunum".






En svo hef ég heyrt að hún sé að gera myndband og fleira í sambandi við sönginn, og þá hélt ég að hún væri þessi típíska leikkona sem notar nafnið til að komast áfram í söngnum, en hún er greinilega búin að vera mun lengur á því sviði en leiklistinni.