Sacha Baron Cohen, sem er betur þekktur sem Ali G, hyggst fara til vikings í bandaríkjunum til að hefja framleiðslu á nýjum þætti sem hefur fengið nafnið Da Ali G Show.
Hann mun meðal annars ræða við replúblikanan Newt Gingrich, Michael Dukakis fyrrum forsetaefni demókrataflokksins og geimfarann Buzz Aldrin.
Meðal persóna í þættinum verður hinn eilífi Borat frá Kasakstan. Við ætlum að vekja upp hinn gamla Ali G segir framleiðandi þáttanna. Við ættum að tala við fólk sem þekkir hann ekki og veit ekki hverju það hefur von á. Þegar er búið að sýna útvöldum nokkra þætti og lögðust þeir vel í áhorfendur. Ali G hefur verið einn vinsælasti sjónvarpsmaður í Bretlandi nú ætlar hann að nema land í Bandaríkjunum