Jennifer Lopez er fædd 24.júlí árið 1970 í The Bronx í New York. Pabbi hennar, David er tölvutæknimaður, er mamma hennar,Guadalupe er í garðyrkju. Jennifer er í miðju tveggja systra sinna. Sú elsta heitir Leslie(34) og er húsmóðir og óperusöngkona. Hin yngri,
Linda(30)er DJ. Foreldrar Jennifer fæddust báðir í Puerto Rico, en hittust ekki fyrr en þau voru bæði flutt þaðan til Bandaríkjanna. Jennifer hóf fyrsta söng-og dansnámskeiðið sitt aðeins 5 ára gömul.Þegar hún var orðin unglingur spilaði hún tennis og var í fimleikum. Eftir skólann vann hún á lögfræðistofu en á næturnar var hún á dansæfingum, sem var hennar áhugamál. 18.ára fór hún að heiman því mamma hennar var hrædd við ákvörðun hennar um að vera í skemmtanabransanum. Hú flutti því burt. Árið ‘90 eftir að hafa leikið í sýningunni: LIVING COLOR flutti hún til L.A, en hataði það allan tímann. Kærasti hennar Davið Cruz flutti til hennar og hún lærði að sætta sig við lífið. Framin í söng tók við eftir að hafa leikið í LIVING COLOR… og náði nýjum toppi er hún lék Latino söngkonuna Selene árið ’97. Þá fór allt að snúast um söng. Og er hún ennþá að í dag.