Í október kom það fram í sviðsljósi FM 957 að þegar að þær sögur byrjuðu um að leikkonan Gwyneth Paltrow og Chris Martin söngvari Coldplay væru að deita, kom frétt sem sagði frá því að þegar að Coldplay voru að spila á tónleikum í New York þá átti Chris að hafa tileinkað lagið “In My Place” til Gwyneth, sem að sat einmitt á fyrsta bekk (tilvijun) og roðnaði auðvitað. Svo þegar Coldplay voru aftur að spila á tónleikum þá er Chris sagður hafa tileinkað henni lagið aftur!
Svo þegar hljómsveitin var að spila í London tileinkaði Chris enn og aftur þetta sama lag til Gwyneth en hún var auðvitað þarna meðal áhorfenda að horfa á sveitina.
En svo þegar hann var spurður um hvort eitthvað væri á milli þeirra þá sagði hann bara “ég er einhleypur um þessar mundir, og þið fáið ekkert upp úr mér hvort eitthvað sé í gangi milli mín og Gwyneth”.
Þau voru örugglega ekki saman þarna, hann reddaði henni bara nokkrum V.I.P miðum inná tónleikana og tileinkaði henni lagið “In My Place” þrisvar. Líklega þekktust þau bara alls ekki neitt;)

En svo kom á daginn að þau viðurkenndu samband sitt en ekki leið á löngu þar til þær sögusagnir bárust að hún hefði sagt söngvaranum upp. Og fylgdi sögunni að hún hefði frekar viljað vera með prinsinum Prins Nicholas (sem er frá Grikklandi).
Slúðurblöð vestanhafs segja að Paltrow vilji jafnvel giftast prinsinum, en hún hefur oft sagt að hana langi til að giftast prinsi.


Gwyneth Paltrow hefur alltaf vakið athygli með ástarsambönd sín, en fyrrverandi kærastar hennar eru margir, s.s. Ben Affleck, Luke Wilson og Brad Pitt. Hún var nú með Luke eitthverntíma í fyrra en ég veit ekki hvort að hún var með eitthverjum á milli þess sem hún hætti með honum og byrjaði með Chris…

En endilega bætið við ef þið vitið meira um þetta samband:)