Jennifer Lopez Kæru Hugarar
Ég held nú að ég hafi verið búin að senda inn grein um Jennifer Lopez en hún kom aldrei svo ég sendi aftur grein um hana.

Jennifer Lopez heitir hún en hún er kölluð mörgum nöfnum eins og J-Lo eða Jenny og mörg önnur nöfn.

Hún er leikari og söngvari en hún var leikari áður en hún byrjaði eitthvað að syngja og verð ég bara að segja að henni hefur gengið vel í bæði söngnum og leiknum.

Fyrsti geisladiskurinn hennar heitir On the 6 en síðan hafa komið fleiri eins og J-Lo en nýjasti heitir Jennifer Lopez this is me…the og held ég að mörgum eigi eftir að finnast hann góður því hann er meðal annars með laginu “Jenny from the block”.

Jennifer er 32 eða varð það 24. júlí síðast liðinn en hún fæddist árið 1970 í Bronx í New york. Hún er með brún augu og brúnt hár eins og flestir vita eftir að hún hafi verið að leika í kvikmyndum og syngja inn á geisladiska.

Jennifer er mikið að skifta um menn en hún er nú með Ben Affleck og ætla þau bráðum að giftast. En þessi gifting verður ekki eins og hinar giftingar hennar Jennifer því þau ætla að bjóða fleirum en hefur verið í fyrri giftingum hennar. Það er þá bara vonandi að þau ekki eftir að endast saman en eins og ég las einhverstaðar í einhverju blaði þá getur Ben ekki tekið augun af Jennifer og eru þau ásfangin upp fyrir haus.
Menn sem hún hefur áður verið með er t.d. Sean “Puffy” Combs og Cris Judd sem hún giftist á seinasta ári en það samband lifði ekki lengi.

Eins og var búin að segja áður byrjaði hún á undan að leika og hér eru myndir sem hún hefur leikið í.

Jersey Girl (2003) Enough (2002) Maid In Manhattan (2002) Angel Eyes (2001) The Wedding Planner (2001)The Cell (2000) Out of Sight (1998) Anaconda (1997) Selena (1997) U-Turn (1997) Blood and Wine (1996) Jack (1996) Money Train (1995).

Kær kveðja Hallat