Justin Berfield Justin Berfield

Ég verð nú að byrja á því að segja að ég bara sá að eiginlega enginn er búinn að skrifa grein í mjög langan tíma þannig ég ákvað bara að slá til.

ATH: Ég er enginn súper dúper aðdáandi þessa stráks, bara vantaði eitthvað til að skrifa um og var að horfa á Malcolm In The Middle og sá þetta nafn. Ekki halda að ég elski hann út af lífinu því það er ekki rétt. Er orðin svolítið leið á þessum stelpum sem eru alltaf að segja hvað þær elska mikið þennan og þennan. Æ, það er bara eitthvað svo fáránlegt.

En hér koma smá upplýsingar um þennan strák, Justin Berfield.

Fullt nafn: Justin Tyler Berfield.
Fæddur: 25. febrúar 1986.
Ólst upp: Pamaran City, Ventura County, Kaliforníu.
Augnlitur: Hazel (veit ekki hvað það þýðir. ;)
Háralitur: Brúnn (núna með gulllitaðar strípur.)
Systkini: Eldri bróðir sem heitir Lorne.
Uppáhalds
- matur: Sushi, pizza, in-N-out hamborgari.
- litur: Rauður.
- leikkona: Jennifer Love Hewitt.
- leikari: Adam Sandler og Jim Carrey.
- hljómsveit: Dr. Dre og Eminem, líka Jay Z.
- kvikmynd: American Pie, Deuce Bigalo Male Gigalo og Austin Powers 2.
- glímukappi: The Rock.
- sjónvarpsþáttur: The Tom Green Show, Blind Date, WWF Smackdown.
Besta fag í skóla: Enska.
Versta fag í skóla: Náttúrufræði og stærðfræði.
Einkunnir: Oftast B.
Gæludýr: Fjórir hundar, tveir kettir, sex hænur og svín.
Áhugamál: Fara í bíó, veiða, vera með vinum sínum.

Aðrar staðreyndir:
· Hefur þriðja beltið í Tang Soo Do Karate.
· Fór í prufu fyrir Anakin Skywalker í Star Wars.
· Langar að verða dýralæknir þegar hann verður eldri ef hann verður ekki leikari.

En svona fyrir þá sem ekki vita, þá leikur hann í Malcolm In The Middle. Hann leikur þarna bróðirinn sem er næstelstur, man ekki hvað hann er kallaður ;)

Fékk upplýsingar af http://www.justberfield.cjb.net

Kveðja, Rakel ;)