Gleymt lykilorð
Nýskráning
Fræði

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.176 stig
STAVKA STAVKA 1.098 stig
gthth gthth 1.038 stig
ritter ritter 576 stig
Fimbulfamb Fimbulfamb 434 stig
VeryMuch VeryMuch 402 stig
br75 br75 316 stig

Stjórnendur

Orrustan við Litlu-Stóruhyrnu (4 álit)

Orrustan við Litlu-Stóruhyrnu Hér er texti sem ég sleppti úr nýjustu grein minni, þar sem hann féll ekki alveg að efni hennar. Samt synd að hafa skrifað þennan texta til einskis, og læt ég hann því fljóta með þessari mynd. Myndin er af Custer (á hestbaki) ásamt liðsmönnum og “indíánaskátum” sínum skömmu fyrir bardagann örlagaríka 25. júní 1876.


Ein af sögulega vafasömustu myndum sem út kom á þessum tíma (um 1940) var They Died With Their Boots On. Hér var sjarmatröllið ástralska Errol Flynn í hlutverki George Armstrong Custer, “indíánabanans” alræmda. Custer fór fyrir “7th Cavalry” Bandaríkjahers, sem á árunum eftir Borgarastríðið hafði það hlutverk helst að stunda það sem í dag er kallað þjóðernishreinsanir. Indíánaþjóðflokkar sem í vegi voru fyrir útbreiðslu Bandaríkjanna til vesturs, voru miskunnarlaust sallaðir niður. Custer hafði getið sér svolítið orðspor í Borgarastríðinu, en var í raun drykkfelldur og mjög óvíst þótti um geðheilsu hans, sérlega eftir að hann hóf hlutverk sitt sem “indíánabani”. Enda mætti hann endalokum sínum árið 1876 þegar hann gegn ráðum skynsamari manna leiddi riddaralið sitt í gildru Sioux-indíána, sem með ofurefli liðs þurrkuðu það gersamlega út í Orrustunni við Little Big Horn.

En í meðferð handritshöfundanna, og ekki síður Errols Flynn, varð Custer að misskildu ljúfmenni sem í raun reyndi allt hvað hann gat til að koma á friði við Síuxa, og verja þá fyrir ágangi fégráðugra landnema. Orrustan varð fyrir misskilning sem varð að undirlagi illra peningaafla í Washington, og Custer lét lífið sem fórnarlamb aðstæðna.

Þrátt fyrir hroðalega frjálslega meðferð á sögunni varðandi Custer og hans menn, mátti myndin þó eiga að hún sýndi þó indíána sem persónur, ekki bara villimenn og byssufóður “káboja”. Höfðingi Síuxa, Óði Fákur, var leikinn af Anthony Quinn í einum af sínum fyrstu hlutverkum. Hann er ekki að ráðast á hvíta menn af blóðþorsta einum saman, hann hefur hagsmuni síns þjóðflokks að gæta, og reynir hvað hann getur til að halda friðinn.


Wikipedia: http://en.wikipedia.org/wiki/They_Died_with_their_Boots_On

Fingrastafróf (17 álit)

Fingrastafróf Nú geta allir lært að stafa með fingrastafrófinu :D

Vlad tepes snæðir meðal stjaksettra óvina (1 álit)

Vlad tepes snæðir meðal stjaksettra óvina Vald Dracula

Klingónska stafrófið (15 álit)

Klingónska stafrófið Þetta er klingónska (veit ekki hvernig það er skrifað) stafrófið.

Er ekki kominn tími á nýja mynd? (3 álit)

Er ekki kominn tími á nýja mynd? Mér fannst bara hin myndi hafa verið hér alltof lengi.. Úff næstum 2 mánuðir!

Berlínar múrinn (12 álit)

Berlínar múrinn Berlínarmúrinn.

Eftir seinni heimstyrjöldina skiptist Þýskalandi í fjögur svæði, sem voru stjórnuð af Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Sovétríkjunum. Gamla Höfuðborg Þýskalands Berlín var stjórnarsetur ríkjanna og var henni skipt upp í fjögur svæði.
Þó ætlunin hafi verið að sameina Þýskaland, varð kalda stríðið til þess að Bandarísku, Bresku og Frönsku svæðin sameinuðust í Federal Republic of Germany (ásamt vestur Berlín ) og Sovéska varð German Democratic Republic. ( og austur Berlín.)
Þýskalandi var skipt í tvennt og byggður var múr í gegnum Berlín sem var kallaður Bérlínarmúrinn.
Bygging múrsins hófst árið 1961 og hann féll 1989.
Á meðan múrinn stóð höfðu um 5000 tekist að flýja yfir múrinn, en 192 til 232 voru drepnir við flóttatilraunir sínar.

Nabla, heildistákn og delta (5 álit)

Nabla, heildistákn og delta Nabla, heildistákn og delta

Útlenska (12 álit)

Útlenska Kannski er þessi að læra heima í útlensku.

NGC 1313 (8 álit)

NGC 1313 Óvenjulegir hlutir að gerast í vetrarbrautinni NGC 1313

Orion Nebula (13 álit)

Orion Nebula Þetta er Orion
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok