Gleymt lykilorð
Nýskráning
Fræði

Ofurhugar

DutyCalls DutyCalls 1.176 stig
STAVKA STAVKA 1.098 stig
gthth gthth 1.038 stig
ritter ritter 576 stig
Fimbulfamb Fimbulfamb 434 stig
VeryMuch VeryMuch 402 stig
br75 br75 316 stig

Stjórnendur

Chiang Kai-shek (0 álit)

Chiang Kai-shek Chiang Kai-shek(1887-1975) var leiðtogi Kuomintan flokksins(þjóðernisflokksins í kína) og barðist hatrammlega gegn Kommúnistum og Japönum en þurfti þó að lokum að flýja til Taívan og stofnaði formlega ríkistjórn árið 1950

John F. Kennedy (3 álit)

John F. Kennedy John F. Kennedy (1961-63)

Atli Húnakonungur (8 álit)

Atli Húnakonungur Þessi stórvægilegi maður stjórnaði Húnunum sínum í landvinningum í vestri, og vann mikla sigra, m.a.s gegn hinu volduga Rómarveldi. Hann trúði mjög svo á galdra ( Night at the Museum info(: ) Að lokum lést hann á brúðkaupsnóttunni sinni, enginn veit hvers vegna, talið er að honum hafi verið byrlað eitur…

Auglýsing frá 1955 (3 álit)

Auglýsing frá 1955 Hversvegna ætli við séum með allskonar reglugerðir um örugg leikföng í dag?

Þetta er auglýsing úr einhverju teiknimyndablaði fyrir stráka, ca. 1955.

Fann þetta á http://blog.modernmechanix.com/ …margt fleira skemmtilegt þar.

“Safe to carry in car”… ég myndi ekki vilja vita af krakka að fikta með þetta í aftursætinu hjá mér :P

kleópatra (5 álit)

kleópatra ákvað að senda inn eina mynd af henni kleópötru því ég er ekkert búinn að sjá hana hérna :D

Ris og fall heimsveldis (8 álit)

Ris og fall heimsveldis Þetta málverk er eftir bandaríska listmálarann Thomas Cole (1801-48), og er týpískt fyrir “rómantíska stílinn” sem þá var alls ráðandi í myndlist.

Þessi mynd er sú fjórða í fimm mynda röð sem kallast gæti á íslensku “Æviskeið heimsveldis”. Hið ónefnda heimsveldi myndanna er fantasíu-kennd blanda af hinum fornu veldum Grikkja og Rómverja, og líklega fleiri eins og t.d. Býzansríkinu.

Það hefur verið tilfellið í mannkynssögunni að heimsveldi líða undir lok, oft hrynja þau undan eigin þunga og/eða sjálfumgleði.

Og við trúum engu síður á að slíkt lögmál gildi en þessi nítjándu aldar listamaður. Enda hafa nú nokkur heimsveldi hrunið eftir hans daga.

Skoðið hinar myndirnar í flokknum hér: http://en.wikipedia.org/wiki/The_Course_of_Empire

Neptúnus (3 álit)

Neptúnus Mynd af plánetunni Neptúnus.

Adolf Hitler. (10 álit)

Adolf Hitler. Hérna er einn æsandi mynd af honum Hitler.

Hannað til Framtíðar (5 álit)

Hannað til Framtíðar Einn af “stærstu” arkitektum millistríðsáranna (og frægustu allra tíma) var Le Corbusier. Hann og menn eins og Bauhaus-mennirnir þýsku, hönnuðu margt flott, en stundum varð þeim á vegna tíðarandans, eins og teikning hans frá 1925 klárlega sýnir!

Eins og segir í skýringatextanum:
Fortunately, nobody would touch Le Corbusier's project with a bargepole, so civilisation was spared a very expensive demolition bill decades later.


Til að koma með smá-forsögu:
Millistríðsárin (1918-1939) voru erfið ár á vesturlöndum. Sár Fyrri heimsstyrjaldar greru seint og illa, og rétt þegar efnahagurinn virtist vera að ná sér á strik, skall Kreppan mikla á.

En á mörgum sviðum menningar og listar voru þetta góðir tímar. Hið gamla konungsvelda-skipulag Evrópu var að eilífu hrunið, og nú höfðu menn háleitar hugsjónir um nýtt og betra skipulag. Fasismi, Kommúnismi, Lýðræði – Hver þessara hugsjóna skyldi nú vera heildarlausnin á vandamálum heimsins? Um það var mikill ágreiningur sem segja má að endað hafi með Seinni heimsstyrjöld.

En um eitt greindi mönnum ekki á: 20. öldin skyldi verða öld stórkostlegustu framfara mannkynssögunnar. Framfarir í tækni og vísindum voru óstöðvandi, og hlytu innan nokkura áratuga að leiða mannkynið inn í Útópíuna sem það hafði alltaf þráð.

Dæmi um þessa óbilandi (en að okkur nú finnst ) trú, eru framtíðaráform arkitekta frá þessum tíma. Þeir reistu að sönnu sína eilífu minnisvarða, t.d. Chrysler og Empire-State byggingarnar í New York. (Risastór minnisvarði 60’s arkitektúrs í sömu borg varð skammlífari eins og við of vel vitum, en það er sannarlega allt önnur saga.)


Grandskoðið endilega síðuna sem myndin er tekin af, http://www.davidszondy.com/future/futurepast.htm

Þó síðan sé næstum jafn slæmt skipulagsslys eins og gatnakerfi íslenska höfuðborgarsvæðisins, er hún ólík að því leyti að hún er “hours of fun”.

the american world (13 álit)

the american world Þar sem einn sendi inn “the canadian world” þá sendi ég inn ameríska heiminn
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok