Snillingurinn Matt Groening höfundur Simpsons og Futurama sjáið viðtal við Mattarann á www.bbc.co.uk/bristol
BMW hefur staðfest að M3 CSL muni fara í framleiðslu. Að BMW skuli búa þennan bíl til eru einhverjar bestu fréttir frá þeim bæ í langan tíma. Aðalatriðið er að CSL mun treysta á lægri þyngd til að skila afköstum frekar en meira afl. Með því að nota m.a. koltrefjaefni mun CSL verða 200 kg léttari en venjulegur M3 eða einungis 1295 kg. Myndin ásamt frétt er fengin af Autozine og má finna á http://autozine.kyul.net/0_News/Latest/Current/News_frame.htm en áhugasamir um fyrstu staðfestu tölur og upplýsingar um Enzo Ferrari (Ferrari FX/F60) geta fundið ítarlega grein á sömu slóð.
Mynd af þessu fræga 14 mínútna endaatriði í The Matrix Reloaded. Þetta er atriði með þyrluna er sagt vera <b>flóknasta atriði sem hefur verið fest á filmu</b>. Þetta atriði inniheldur þyrlu sem flýgur í gegnum borgina og er myndavél fyrir neðan þyrluna. Vonandi er það jafn flott og það er flókið. Ég get ekki beðið eftir þessari mynd og hef miklar væntingar til hennar og ég held að hún slái út fyrri myndina, The Matrix, eða það vona ég allavega.