Þetta er Afi,Hann er NetKarl og Vann Hjá Símanum
Fáar lúxuskerrur hafa státað af sama glæsileika og hinn franski Facel-Vega Excellence frá 1956-61. Hönnunin minnir óneitanlega á ameríska bíla frá sama tíma, en er einhvern veginn fágaðri og glæsilegri. Vélin er hins vegar al-amerísk - Chrysler V8 með haug af hestum til að skila þessum þunga bíl áfram. Meðal eigenda Excellence voru stjörnur á borð við Ava Gardner og kappakstursmeistarann Sir Stirling Moss.
Ég rakst á þessa mynd á netinu sem sýnir hvernig BMW hannaði vindskeið á BMW Z1 einn án þess að nota væng á skottlokið. Humgyndin er stórsnjöll… Hljóðkúturinn virkar sem vængur með neikvæðri lyftingu eins og sést á myndinni. Bláu fletirnir eru bíllinn, stuðararnir, driflæsingin og svo hljóðkúturinn!