Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Útrýmum Þýskalandi! (3 álit)

Útrýmum Þýskalandi! Hér er kort úr riti sem kom út í New York árið 1941 og nefndist “Germany must perish!”. Var það samið og útgefið af rugludalli að nafni Theodore N. Kaufman. Í þessu riti var velt upp spurningunni hvernig skyldi meðhöndla Þýskaland eftir að sigur hefði unnist í styjöldinni. Lausn Kaufmans var sú að gelda alla þýsku þjóðina! Þannig yrði þessu vandræðafólki útrýmt “á mannúðlegan hátt” á nokkrum áratugum. Landinu skyldi síðan skipt upp milli nágrannaþjóða líkt og kortið sýnir. (Kaufman var ekki mikið að spá í því hvort mannskapur fengist í þessar aðgerðir, eða hvort nágrannaþjóðir Þýskalands hefðu nokkurn áhuga á þessu).

Þessu var enda hvergi tekið alvarlega. Stórblaðið TIME var gagnrýnt harðlega fyrir að einu sinni “heiðra” þetta sorprit með ritdómi (þó sá dómur hafi kallað ritið og boðskapinn sínum réttu nöfnum). En fyrir Goebbels og félaga í Þýska áróðursráðuneytinu, var þetta hrein himnasending. Þeir notuðu þetta óspart allt til stríðsloka, til að sýna þýskum almenningi hvað óvinirnir (sérstaklega “Gyðingurinn”) ætluðu sér að gera Þýskalandi. Í þeim áróðri var Kaufman kynntur sem virtur og málsmetandi maður í Bandaríkjunum, dæmigerður fulltrúi “Gyðingavæðingar” þess mikla lands.

Þess ber þó að geta að önnur - þó ekki jafn öfgafull - plön fengu nokkurn hljómgrunn í bandaríska stjórnkerfinu. Frægust af þeim var “Morgenthau-áætlunun” en samkvæmt henni átti að uppræta allan þýskan þungaiðnað og gera landið framvegis að undirokaðri landbúnaðarþjóð. Það var snögglega hætt við það eftir stríðið, þegar menn sáu klárlega að Evrópa gat ekki án þýsks iðnaðar og viðskiptalífs verið.

http://en.wikipedia.org/wiki/Germany_Must_Perish!

Ég hvet síðan áhugasama eindregið til að skoða “external links”.

Ný mynd (6 álit)

Ný mynd Því það var kominn tími til.

Þessa mynd fann ég á deviantart fyrir slysni. Á henni eru marglitar kisur, sem er vel til þess fallið að skapa hamingju hjá hverjum sem hana lítur augum.

Hann kallar sigEmperpep á deviantArt sem á heiðurinn af henni.

Sjóræningja mörgæsir (3 álit)

Sjóræningja mörgæsir oh noez

Ég. Eru klútar málið ? (38 álit)

Ég. Eru klútar málið ? bara spá hvað fólki finnst um þetta, eru þeir málið ? :)

Burn! (4 álit)

Burn! Rakst á þetta á Facebook og langaði að deila þessu með ykkur! :D

0H WTF ?! (12 álit)

0H WTF ?! bögg :s …

Hámeri 2 (3 álit)

Hámeri 2 hérna er önnur mynd af hámerini sem rúnar veidi í grástleppunet, fyrir 3 árum rétt hjá svefneyjum í breiðarfirði.

Breyting? (36 álit)

Breyting? Sú vinstri er tekinn fyrir nákvæmlega ári síðan, hin er tekin núna í nóvember minnir mig. Byrjaði ekki að æfa og grennast á fullum krafti fyrr en í sumar, fékk bílpróf og þá nennti maður þessu hehe. Náði frá 106kg niður í 87kg. Að vísu hef ég þyngst aðeins núna yfir jólinn eða um 2kg, bæði leti og alltof mikið matarát en ég á eftir að byrja í gymminu aftur eftir jólinn svo þetta kemur.

Ehe (31 álit)

Ehe

No7 extravagant lashes (11 álit)

No7 extravagant lashes ATH!! myndin er croppuð fááááránlega, því ég kann ekki að minka í macca :$ oog hún vildi ekki passa annars!!


en langaði að deila með ykkur maskara sem ég keypti í London þegar ég var þar í september!
án efa sérstakasti maskari sem ég hef séð hingað til, varð bara að kaupa hann vegna þess hversu spes hann var. Fylgdi svo þessi fínasta paletta með 4 augnskuggum.

en annars er þetta einn sá versti maskari sem ég hef prófað! klessist bara og augnhárin verða að kekkjum!

fleiri myndir:
http://i46.tinypic.com/zlvn7s.jpg
http://i48.tinypic.com/atncwn.jpg
http://i49.tinypic.com/ouxhds.jpg
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok