Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Arcturus (17 álit)

Arcturus Flippararnir í Arcturus (þýðir verndari bjarna…). Þess má geta að Hellhammer trommar í þessu bandi og ICS Vortex syngur, þannig engir smá snillingir sem eru í þessari hljómsveit. Þeir spila einhvernveigin symphonic - experimental - blackmetal. Ég var að reyna að finna link inná einhver af lögunum þeirra en þið verðið víst bara að downloada ;)

Kristilega Blackmetal Bandið Fróði Og Gríslingarnir (32 álit)

Kristilega Blackmetal Bandið Fróði Og Gríslingarnir þessi mynd er frá frostrokk þar sem þeir tróðu upp í fyrsta skiptið. Line-uppið var svona:

Sigurður - Gítar og söngur
Daði - Bassi Og söngur
Stefán - Synth og söngur
Atli - Hljómborð
Fróði - Trommu

Rolls HA43 (3 álit)

Rolls HA43 nettur headphone mixe

double (10 álit)

double já hérna tók ég double í spotti endilega ef þið ætlið að koma með einhver svona “lol lítið fps” eða “ömurlegt skjákort” vinsamlegst sleppa því takk. :D

Kona (7 álit)

Kona Var að gera hana fyrir bara stuttu:D

Orrustan við Litlu-Stóruhyrnu (4 álit)

Orrustan við Litlu-Stóruhyrnu Hér er texti sem ég sleppti úr nýjustu grein minni, þar sem hann féll ekki alveg að efni hennar. Samt synd að hafa skrifað þennan texta til einskis, og læt ég hann því fljóta með þessari mynd. Myndin er af Custer (á hestbaki) ásamt liðsmönnum og “indíánaskátum” sínum skömmu fyrir bardagann örlagaríka 25. júní 1876.


Ein af sögulega vafasömustu myndum sem út kom á þessum tíma (um 1940) var They Died With Their Boots On. Hér var sjarmatröllið ástralska Errol Flynn í hlutverki George Armstrong Custer, “indíánabanans” alræmda. Custer fór fyrir “7th Cavalry” Bandaríkjahers, sem á árunum eftir Borgarastríðið hafði það hlutverk helst að stunda það sem í dag er kallað þjóðernishreinsanir. Indíánaþjóðflokkar sem í vegi voru fyrir útbreiðslu Bandaríkjanna til vesturs, voru miskunnarlaust sallaðir niður. Custer hafði getið sér svolítið orðspor í Borgarastríðinu, en var í raun drykkfelldur og mjög óvíst þótti um geðheilsu hans, sérlega eftir að hann hóf hlutverk sitt sem “indíánabani”. Enda mætti hann endalokum sínum árið 1876 þegar hann gegn ráðum skynsamari manna leiddi riddaralið sitt í gildru Sioux-indíána, sem með ofurefli liðs þurrkuðu það gersamlega út í Orrustunni við Little Big Horn.

En í meðferð handritshöfundanna, og ekki síður Errols Flynn, varð Custer að misskildu ljúfmenni sem í raun reyndi allt hvað hann gat til að koma á friði við Síuxa, og verja þá fyrir ágangi fégráðugra landnema. Orrustan varð fyrir misskilning sem varð að undirlagi illra peningaafla í Washington, og Custer lét lífið sem fórnarlamb aðstæðna.

Þrátt fyrir hroðalega frjálslega meðferð á sögunni varðandi Custer og hans menn, mátti myndin þó eiga að hún sýndi þó indíána sem persónur, ekki bara villimenn og byssufóður “káboja”. Höfðingi Síuxa, Óði Fákur, var leikinn af Anthony Quinn í einum af sínum fyrstu hlutverkum. Hann er ekki að ráðast á hvíta menn af blóðþorsta einum saman, hann hefur hagsmuni síns þjóðflokks að gæta, og reynir hvað hann getur til að halda friðinn.


Wikipedia: http://en.wikipedia.org/wiki/They_Died_with_their_Boots_On

Exploited (1 álit)

Exploited geðveik sveit

Feðgar (4 álit)

Feðgar Tiger og Earl Woods

Dauða Bók (13 álit)

Dauða Bók Þar sem að þetta frábæra manga er loksins orðið að anime þá er það tilvalið að skella einni mynd af því hingað inn. (þó svo að það er liðinn um það bil mánuður síðan að anime'ið byrjaði)

*Fyrir þá sem að vilja stærri mynd: http://img85.imageshack.us/img85/3600/gallery257995184259717cv6.jpg

Fushigi Yugi (35 álit)

Fushigi Yugi Þetta eru Chichiri, Nuriko, Yui, Miaka, Tamahome, Hotihori og eikker kjelling sem ég veit ekki hver er:S En þau eru úr bókunum fushigi yugi, the mysterious play. Elska bækurnar!! :D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok