Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Grímuballið (45 álit)

Grímuballið Hérna er gaurinn sem bjó till sinn eigin Smarter Child búning á grímuballinu í skólanum :)
Þarna er verið að afhenda honum verðlaun (1500 kr. gjafabréf í Smáralind) fyrir frumlegasta búninginn af Mr. Incredible og einhverjum morðóðum lækni :')
En já, hann hefur greinilega ekki haft mikið að gera þennan dag þegar hann bjó til búninginn…

Alice DeeJay (2 álit)

Alice DeeJay Hér er Alice DeeJay sem gerði meðal annars lagið “Better Of Alone” geysivinsælt fyrir þó nokkrum árum.

ABBA (2 álit)

ABBA !!:)

Þreittur (11 álit)

Þreittur kisi í sólbaði:)

Myrkviður? (18 álit)

Myrkviður? Á þessari mynd er ég (hvítur og blár pólóbolur) og tveir félagar mínir að taka Alt lys er svunnet hen með Dimmu Borgum. Það vantar trommarann og hljómborðsleikarann en þeir skipta svosem engu máli.

Við kölluðum okkur Myrkviður en ég er ekki alveg viss hvort að nafnið standi (ástæða spurningamerkisins).

Btw þá fiktaði ég við myndina í photoshop og já, þetta var besta myndin sem ég fann af þessum tónleikum.

Custer & Indjánarnir (3 álit)

Custer & Indjánarnir Hér er “outtake” úr nýjustu grein minni (sem birtist fljótlega á þessu áhugamáli). Ákvað að sleppa þessu úr greininni, þar sem það féll ekki alveg að efni hennar. Samt synd að hafa skrifað þennan texta til einskis, og ég læt hann því fljóta með þessari mynd:


Ein af sögulega vafasömustu myndum sem út kom á þessum tíma (um 1940) var They Died With Their Boots On. Hér var sjarmatröllið ástralska Errol Flynn í hlutverki George Armstrong Custer, “indíánabanans” alræmda. Custer fór fyrir “7th Cavalry” Bandaríkjahers, sem á árunum eftir Borgarastríðið hafði það hlutverk helst að stunda það sem í dag er kallað þjóðernishreinsanir. Indíánaþjóðflokkar sem í vegi voru fyrir útbreiðslu Bandaríkjanna til vesturs, voru miskunnarlaust sallaðir niður. Custer hafði getið sér svolítið orðspor í Borgarastríðinu, en var í raun drykkfelldur og mjög óvíst þótti um geðheilsu hans, sérlega eftir að hann hóf hlutverk sitt sem “indíánabani”. Enda mætti hann endalokum sínum árið 1876 þegar hann gegn ráðum skynsamari manna leiddi riddaralið sitt í gildru Sioux-indíána, sem með ofurefli liðs þurrkuðu það gersamlega út í Orrustunni við Little Big Horn.

En í meðferð handritshöfundanna, og ekki síður Errols Flynn, varð Custer að misskildu ljúfmenni sem í raun reyndi allt hvað hann gat til að koma á friði við Síuxa, og verja þá fyrir ágangi fégráðugra landnema. Orrustan varð fyrir misskilning sem varð að undirlagi illra peningaafla í Washington, og Custer lét lífið sem fórnarlamb aðstæðna.

Þrátt fyrir hroðalega frjálslega meðferð á sögunni varðandi Custer og hans menn, mátti myndin þó eiga að hún sýndi þó indíána sem persónur, ekki bara villimenn og byssufóður “káboja”. Höfðingi Síuxa, Óði Fákur, var leikinn af Anthony Quinn í einum af sínum fyrstu hlutverkum. Hann er ekki að ráðast á hvíta menn af blóðþorsta einum saman, hann hefur hagsmuni síns þjóðflokks að gæta, og reynir hvað hann getur til að halda friðinn.

Axe bass (9 álit)

Axe bass það væri nú ekki amalegt að eiga svona græju

Japanski skrautfiskurinn (0 álit)

Japanski skrautfiskurinn Japanski Skrautfiskurinn minn (koji)

Pearl elx settið mitt á tónleikum (49 álit)

Pearl elx settið mitt á tónleikum Hér er mynd af mér og settinu minu á tónleikum..
Er að spila með Finngálkn þarna

Hálf skrúfa (5 álit)

Hálf skrúfa ég í hálfri skrúfa
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok