Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Taekwondo beltapróf í mexíkó (4 álit)

Taekwondo beltapróf í mexíkó tekið af www.dojangdreki.com

Próf í Mexíkó
Þriðja beltapróf Dojang Pequenos lauk í gær þegar Master Sigursteinn Snorrason heimsótti okkur og hélt beltapróf fyrir nemendur SsangYongTaekwon - Dojang Pequenos. 75 nemendur þreyttu próf og stóðust flestir prófið sitt. Nokkrir áttu þó í vandræðum með formin sín og munu þeir taka endurtektarpróf eftir 2 vikur, þ.e.a.s. þann hluta prófsins.
Það var einnig mikið um sérstakar útnefningar. Daniel Sanchez Luna, 10 ára, var valinn nemandinn með tæknilegasta besta toljochagi (bogaspark) prófsins og sýndi hann fram á það með því að brjóta viðartöflu með sparkinu í höfuð hæð og gerði hann það í fyrstu tilraun.
Einnig var valinn nemandinn með besta poomse (formið), Germán Celis Beltrán, og fékk hann þá ábyrgð að aðstoða í tímum yngri krakkana við formin sín.

Krakkarnir voru eflaust einnig mjög spennt yfir því að fara að keppa á sínu fyrsta móti utan heimilisins með nýja beltið sitt. Þetta mót er haldið árlega í borginni Acapulco sem er mikil strandaborg og höfum við verið að safna pening fyrir þessari ferð í langan tíma. Okkur hefur tekist að safna fyrir ferðinni með hjálp ykkar og mun verða skrifað um þá ferð á næstu dögum og munu að sjálfsögðu myndir fylgja með.

Sérstaka þökk fær Jón Hermann í Fjölni. Honum tókst að safna 50.000 kr. sem hann fékk frá endurvinnslunni fyrir flöskur sem hann hafði safnað. Þessi peningur fór í að kaupa búninga fyrir alla þá nemendur sem tóku próf og ramma fyrir viðurkenningarnar þeirra. Krakkarnir sýndu þakklæti sitt og sendu Jóni Hermanni tvær stórar myndir sem þau teiknuðu handa honum ásamt því að gefa honum dobok (Taekwondo galla) sem þau skrifuðu öll nafnið sitt á þar sem peningurinn sem hann safnaði var notaður í dobok handa krökkunum. Jón Hermann safnaði þessum pening á þrem mánuðum eins síns liðs og sannaði það að vera mikilmenni býr ekki í stórum og stæltum vöðvum heldur í sterkum hug og stóru hjarta.

Takk fyrir Jón Hermann frá öllum Pequenos Hermanos hér í Mexico.

Levy.

C&H (10 álit)

C&H Sorry sendi bara þennann svo ekki koma með nein skíta komment.

Saggy boobs (7 álit)

Saggy boobs Fannst þetta nokkuð skondið ;P

Extreme (34 álit)

Extreme Það er í tísku að senda inn myndir af sér að spila. Finnst myndirnar hafa verið fínar sem hafa komið. En þær eru ekki nógu extreme. Svo ég ætla að henda einni extreme mynd af mér hérna. (Trommarinn úr Foreign Monkeys er þarna undir mér) Koma svo allir að commenta “EXTREME!”

Trivia (21 álit)

Trivia Hverjir eru þessir sætulýusar ?

Ulvur gefur 10000000 stig fyrir þann sem segir rétt ;)

Japan (3 álit)

Japan Adrian Oesch að gera Japan

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga (0 álit)

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga Fyrst að nú standa yfir skráningar fyrir sumarönnina er hér svipmynd frá námskeiði hjá Ágústu Skúla í fyrra.

Platoon (10 álit)

Platoon Hér má sjá Willem Dafoe í mögnuðu atriði í myndinni Platoon. Atriðið sjálft misheppnaðist að mestu vegna þess að blóðpokarnir framan á Willem sprungu ekki þegar hann var skotin en samt var atriðið notað vegna magnaðs leiks Willem.

Jet storage (5 álit)

Jet storage veit að þetta er gamalt en ég vildi bara koma þessari 2142 mynd í burtu!…

Casper :) (3 álit)

Casper :) Casper hundurinn minn :)
blandaður Border Collie og Labrador :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok