Enn skemmtilegasti leikur sem ég hef farið á, stemminginn er ólýsanleg. Eitt frábærasta kvöld í vesturbænum lengi, sennilega bara frá sumrinu 1999.
Jæja, þá er loksins komin inn flott mynd af hestinum, þessi mynd er tekin í hestaferðinni sem ég fór í í sumar, þarna erum við á leið í Galtalæk frá Landmanna Helli að mig minnir næstsíðasta daginn. Með í för var ljósmyndari sem sá yfirleitt um alla myndatöku í ferðinni.
Fyndinn bolur sem ég hannaði, gæti verið gaman ef allir mættu í svona á kundur, en dunno.