
Þetta er Sarah Hartshorne… keppandi í America's Next Top Model. Daman er þar “Plus size model”. Hvað finnst fólki um það? Hún notar evrópsku stærðina 8, eða bandarísku 4. Það þýðir að hún er 4 stærðum minni en hin almenna bandaríska kona.
Að mínu mati er þessi stelpa með fullkominn vöxt. Mjög grönn og flott án þess að vera komin út í þennan horaða sjúkleika sem flestar fyrirsætur eru. Þetta þýðir í raun að Jessica Alba er yfirstærð. Það er semsé “plus size” að vera heilbrigð… takk fyrir pent.