Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Framheljarstökk hjá Nóatúni (3 álit)

Framheljarstökk hjá Nóatúni pinu gamalt, þetta er eitt af fyrstu framheljar sem ég gerði á malbik

Sly í dag (27 álit)

Sly í dag Ekki slæmt fyrir 60 ára mann.

Rammstein - Mütter (45 álit)

Rammstein - Mütter Fyrsta metal platan mín, fékk hana þegar ég var 8 ára og hlustaði stanslaust á hana í 4 ár.. orðinn hundleiður á henni núna auðvitað enda hlusta ég núna á aðeins meira extreme núna.

Hot stuff! (18 álit)

Hot stuff! hothothot! svona voru auglysingagellurnar a Arnold Classic 2009! svona eiga konur ad vera ! ekki svona kate moss beinagrindur!

Hárið á kappanum! (24 álit)

Hárið á kappanum! Já, hérna er kallinn á góðum hárdegi!

Sólarlag (2 álit)

Sólarlag Sólsetur við ströndina [ 1/250, f/6.3, ISO-100, 75mm ]

Hermann Maier (5 álit)

Hermann Maier Einn þekktasti skíðamaður í heiminum

TF-JMM (1 álit)

TF-JMM Fokker 50 í flugtaki á braut 01.

Effektabrettið (25 álit)

Effektabrettið Þetta er effektabrettið mitt. Er búin að vera að dunda mér við að setja púsla þessu saman, tengja og raða öllu upp.
Þetta er Road Ready taska sem ég fékk í Hljóðfærahúsinu (Pfaff flytja þetta inn), ég er mjög ánægður með hana. Sterk, ekki of þung og mjög sniðug ef þú villt ekki vera með snúrur og vesen útum allt á brettinu þínu :)

Var að ljúka við þetta núna um daginn og held að ég gæti ekki verið mikið ánægðari með útkomuna.
Hörku sound, suðar lítið sem ekki neitt og þægilegt að komast í alla effektana (raðaði þeim auðvitað þannig að auðveldast er að komast að þeim sem ég nota mest).

Ég notaði aðallega Planet Waves patch snúrur sem maður setur saman sjálfur til að tengja þá saman, mæli sterklega með þeim.
Ræður algerlega hvernig snúrurnar er á brettinu hjá þér með þeim (lengd, hvernig þær liggja og hvernig hausarnir snúa). Svo er ég líka með nokkrar Fender 1ft. Koil Kord patch snúrur.


Röðin á effektunum er svona:

- MXR Boost/Line Driver (nota hann til að keyra aðeins upp signalið úr bassanum í gegnum keðjuna)

- EHX BIG MUFF Pi U.S.A. (Fuzz, lítið fuzz en dimmt og þungt sound)

- EHX Big Muff Pi USSR (Fuzz, mikið fuzz, meira treble, þungt en sker vel í gegn)

- Dunlop CryBaby (Bass Wah, nota hann á eftir fuzz effektunum til að fá greinilegra wah sound úr honum)

- Digitech Whammy (nýjasta nýtt á brettinu, mjög skemmtilegur effekt sem ég á eftir að grúska aðeins betur í)

- MXR Stereo Chorus (Chorus, nota hann aðallega til að fá aðeins stærra sound, bæði clean og með drive)

- EHX BassBalls USSR (Twin Dynamic Filter, envelope filter, mjög einkennilegur og “funky” effekt, er einnig með distortion rofa sem eykur bara á geðveikina í þessum pedal)

- EHX #1 Echo (Delay, <– segir sig eiginlega sjálft, get líka notað hann til að búa til skemmtilega skrítið reverb)

- Ernie Ball VP Jr. (Volume Pedal, góður, nettur og sterkur volume pedall)

- Boss TU-2 (Chromatic Tuner, eini pedallinn sem ég gæti ekki verið án, mjög góður tuner sem er alveg brilliant að vera með þegar maður er að spila live, á æfingu eða bara heima)

**- Svo nota ég DC Brick til að fá straum í allt (nema Whammy og Big Muff Pi USSR, þarf sér straumbreyti fyrir Whammy (PS0913B) og battery fyrir Big Muff (ekkert tengi fyrir straumbreyti)


…þetta er brettið mitt. Ef það eru e-r spurningar þá spyrjið mig bara :)

Hugmynd að húðflúri (31 álit)

Hugmynd að húðflúri Mér finnst þessi mynd geðveikt kúl.
Ég veit að það er ráðlagt að gera ekki hljómsveitartattú og shiz en mér finnst þetta svo sjúklega flott.

Er samt smá að pæla með staðsetninguna, á annað herðablaðið, síðuna eða neðar laga á bakinu, ekki mjóbakinu í miðjunni heldur svona frekar á hliðinni…
Svo hvað segja húðflúrsgúrúin? :Þ
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok