Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Muahah (2 álit)

Muahah Beat that :D sá hlær best sem síðast hlær.. Mwahaha

Jóla screen (8 álit)

Jóla screen já varð að taka fallegt jóla screen í wow :)

HxH (2 álit)

HxH Hunter X Hunter, snelld

Dótið mitt (39 álit)

Dótið mitt Hér hafiði það, allt dótið mitt samankomið.

Lengst til hægri höfum við Casio Privia 88 lykla Digital Píanó.

Fyrir neðan það er eitthvað eldgamalt Yamaha hljómborð eða réttara sagt skemmtari sem ég fékk frá frænda mínum.

Næst er það Esp Ltd KH-602, ég veit ekki afhverju ég setti þessar neglur þangað… bara smá fíflaskapur í mér býst ég við :D

En svo á eftir honum sjáiði fyrsta gítarinn minn sem er Tanglewood klassískur gítar og meira veit ég ekki um hann.

Magnarinn þar fyrir aftan er Line 6 Spider II 212 sem svo margir kannast eflaust við :)

Og svo ofan á honum liggur footswitch-id fyrir Spider-inn (bakvið hausinn á klassíska gítarnum, sést ekkert það vel) ásamt heyrnartólum sem ég plugga oft í spiderinn þegar allir eru farnir að sofa :P

Þar fyrir ofan er gamli Apollo gítarinn minn sem ég hef verið að gera upp eða öllu heldur í sumar. Hef ekki gert neitt mikið meira við hann síðan, ætla að reyna að klára að pússa hann og rúnna hliðarnar betur og svona og lakka í jólafríinu. Fyrir neðan gítarinn sjáiði Page magnarann sem fylgdi með Apollo gítarnum (nota hann reyndar ekki neitt lengur).

Ofan á Page magnaranum er að finna blokkflautuna mína, fyrsta hljóðfærið sem ég lærði á. Málið var bara að það var grútfúlt að læra á hana og ég hætti fljótlega, enda bara í 4. bekk eða eitthvað álíka. Ég man samt að ég lærði að lesa nótur geðveikt vel á þeim tíma en svo eftir að ég hætti þá pældi ég ekkert í því og gleymdi mestmegnis af því :(

En já, áfram með smérið. Fyrir framan blokkflautuna stendur fjögurra áttunda Hohner munnharpan mín sem amma gaf mér :D

Og svo eru bara einhverjar snúrur þarna og annað svoleiðis ásamt klútum sem ég nota til að pússa, fægja og bóna gítarana :)

Selló (7 álit)

Selló þetta er sellóið mitt

Horn (3 álit)

Horn Ég er að fara að læra á eitt svona sennilega eitthvað í kringum næsta haust.

Jackson Randy Rhoads 5 Custom (13 álit)

Jackson Randy Rhoads 5 Custom gítar fyrirmyndar hans Zakk Wylde… Randy Rhoads ef hann væri lifandi værum við að fela okkur í neðanjarðarbyrgjum. hann var snillingur greyið

Zakk Wylde Dean Razorback (19 álit)

Zakk Wylde Dean Razorback ohh hann er svo geðveikur (bæði gítarinn og Zakk)

Gítar (9 álit)

Gítar Hvernig finnst ykkur þessi??
og getur einhver sagt mér hvað hann heiti

Arcturus (8 álit)

Arcturus Uppáhalds metal bandið mitt:DAllir að tékka á þeim sem hafa áhuga á progressive eða experimental metal!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok