góð auglýsing
Þessi gríðarlega fallega kirkja var reist árið 1084 og var upphaflega notuð til grísk-rétttrúnaðar trúariðkunar. Norrænir menn kölluðu hana Ægisif. Árið 1453 hertóku Ósmannar Konstantínópel og gerðu Sofiukirkjuna að mosku. Allar fallegu mósaíkmyndirnar voru eyðilagðar þar sem íslömsk trú leyfir ekki myndir í trúhúsum sínum. Loks gerði Tyrkjaforsetinn Kemal Ataturk hana að safni og lét allar mósaíkmyndirnar hafa verið endurgerðar og byggingin er enn í dag talin ein af fallegustu byggingum sem hefur nokkurn tímann verið byggð.
Var byggt í kringum 1650 í Agra, Indlandi. Mógúlakeisarinn Shah Jahan lét byggja þessa fallegu byggingu sem grafhýsi fyrir eiginkonu sína. Fólk hefur velt því lengi fyrir sér hvað það sé sem geri þessa byggingu svona fallega. Sumir segja samræmið milli garðsins og byggingarinnar, aðrir hversu umfangsmikil hún er og stór, og enn aðrir segja að hugarfarið hjá Mógúlakeisaranum geri hana svona fallega. Maður sem ferðast um alla Asíu til finna efni í hús yfir látna konu sína. Mjög rómantískt. Mér finnst þetta síðastnefnda. Hvað finnst ykkur?
Angkor Wat var/er musteri í Angkor, Kampútcheru (Kambódíu) og var byggt á 12. öld af Surjavamani II kóngi til að vera konungshöll og þjóna þjóðtrúnni, hindúisma. Tveimur til þrem öldum seinna var Angkor Wat umbreytt í búddhistamusteri. Angkor Wat er mjög flókin bygging með fimm “turna” og mikið verkfræðiundur. Í dag reyna menn hvað þeir geta til að viðhalda byggingunni fallegu til að halda áfram tilbiðslu þar. Í dag er þetta mesta túristasvæði í Suðaustur-Asíu og ferðamönnunum fjölgar ár frá ári.