Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Steinn Ármann Magnússon (3 álit)

Steinn Ármann Magnússon Hinn kynþokkafulli

Varda, Drottning Stjarnanna (0 álit)

Varda, Drottning Stjarnanna Hún þekkir best öll svið Jásins, hún er of fögur til þess að því verði lýst með orðum Mann eða Álfa; Því að sjálft frumljós Alföðurs lýsir enn í andliti hennar. Hún reis upp úr djúpum Jásins til að liðsinna Manve; því að hún hafði þekkt Melkor fyrir daga söngsins og hafnað honum, og Melkor hataði hana og óttaðist meira en allt annað í sköpunnarverki hins Eina Alföðurs.

LoL Limewire! (30 álit)

LoL Limewire! Vá ég er orðinn háður þessu dóti!, búinn að hafa þetta í gangi ekkert smá lengi, þetta er bara geðveik snilld =D!

http://img247.imageshack.us/img247/9971/youareapirate5xb.swf

Hot Rod (7 álit)

Hot Rod Holden EFIJY Hot Rod Concept

Soldið nútímalegur Hot Rod en frekar nettur!

Spilverk þjóðanna : ) (7 álit)

Spilverk þjóðanna : ) þetta er besta plata þeirra í spilverk þjóðanna :) ef platann þeirra með Megas er ekki talin með :)
platann heitir “Sturla”
söngkonan Diddú er núna besta óperusöngkonan og hefur oft sungið með faðir mínum *mont*

Maus (0 álit)

Maus Jæha hvorki meira né minna endurkoma maus 17 ágúst síðastliðinn enn þetta eru allir meðlimir þeirra. Danni, eggert, palli og Biggi.

Hver veit nema þeir ætli að fari aftur að spila saman ?

Nýjar aldursmerkingar í bíó, sjónvarpi og tölvuleikjum! (9 álit)

Nýjar aldursmerkingar í bíó, sjónvarpi og tölvuleikjum!
Frá og með 1. júlí síðastliðnum tóku í gildi ný lög um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum. Með nýjum lögum falla eldri lög um skoðun kvikmynda og bann við ofbeldismyndum úr gildi og verður starfsemi Kvikmyndaskoðunar lögð niður frá sama tíma.

Samkvæmt nýjum lögum skulu aðilar sem framleiða kvikmyndir eða tölvuleiki til sýningar eða sölu hér á landi, eða hafa kvikmyndir eða tölvuleiki til sýningar, leigu, sölu eða annarrar dreifingar, í atvinnuskyni hér á landi taka við því hlutverki sem Kvikmyndaskoðun gegndi samkvæmt eldri lögum.

SMÁÍS (Samtök Myndrétthafa á Íslandi) mun sjá um að samræma merkingar og hanna verklagsreglur sinna félagsmanna vegna nýrra laga. Jafnframt munu samtökin á komandi mánuðum koma upp miðlægum gagnagrunni þar sem niðurstöður mats verða opinberlega birtar og almenningur getur aflað sér upplýsinga um niðurstöðu aldursmerkinga einstakra mynda, þátta eða tölvuleikja. Einnig verður komið upp verklagi fyrir kvörtunarferli. Þá mun SMÁÍS einnig taka við gagnagrunni sem Kvikmyndaskoðun hafði áður undir höndum.

Frá 1. júlí munu því neytendur sjá nýjar merkingar um aldursflokkun á kvikmyndum sem gefnar eru út af félagsmönnum á DVD eða eru sýndar í kvikmyndahúsum. Á komandi mánuðum munu sömu merkingar ná yfir sjónvarpsefni einnig. Við flokkun tölvuleikja verður áfram stuðst við svokallaðar PEGI merkingar sem er samevrópskt flokkunarkerfi og eru þær merkingar að finna á öllum tölvuleikjum sem fluttir eru inn af félagsmönnum SMÁÍS.

Nýjar merkingar byggja á tveimur aðskildum en samverkandi þáttum. Fyrri þátturinn er aldursflokkun en aldursflokkarnir eru: “L” (leyfð), “7”, “12”, “16” og “18”. Hinn þátturinn eru efnisvísar myndarinnar. Fjöldi efnisvísa getur verið allt upp í sex og sýna þeir fram á ástæðu þess að myndefnið er ekki við hæfi ákveðins aldurshóps. Efnisvísarnir eru: ofbeldi, kynlíf, eiturlyf, hræðsla, fordómar/misrétti og blótsyrði. Þess má geta að við hönnun efnisvísanna var leitast við að nota sömu tákn og er að finna á PEGI tölvuleikjamerkingum, til einföldunar fyrir neytendur en PEGI kerfið styðst einnig við sömu aldursflokkun og efnisvísa. Samningaviðræður við ISFE (Interactive Software Federation Europe) sem á og rekur PEGI merkingarnar um notkun á þeirra efnisvísum eru í gangi og er búist við að þeim ljúki á næstu dögum.

Aldursflokkarnir munu áfram halda þeim litum sem Kvikmyndaskoðun hefur notað í gegnum árin og þannig verður merki aldursflokksins “L” (leyfð) grænt að lit o.s.frv. Allar merkingar fyrir myndefni verða kringlóttar og er þannig skilið á milli aldursmerkinga myndefnis og aldursmerkinga tölvuleikja sem verða ferkantaðar.

Eftirlit með að ákvæðum nýrra laga sé framfylgt er í höndum Barnaverndarstofu.

Jónas (12 álit)

Jónas Þetta er Jónas draugu

Bubbi hundur (8 álit)

Bubbi hundur Flott pósa og flott umhverfi líka. Tekið í Loðmundarfirði 2005.

Doubt!! (5 álit)

Doubt!! Geðveikt skemmtilegt manga!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok