Alveg elska ég svona. Lenda undir snemma leiks og útlitið svart en síðan 3 mörk á 4 mínútum og sigurinn tryggður.Ég spila sem Arsenal.
Miðturn (e. stornghold) hins mikla Château de Coucy, eða Coucy kastala, að mínu mati magnaðasta kastala miðalda. Hann var byggður á þriðja áratugi þrettándu aldar og var frægur fyrir sína stóru og háu turna, sérstaklega miðturninn, en hann var um 31 meter í þvermál og 54 metra hár, og átti engan sér líkan. Fyrir vikið var kastalinn stolt hvers herra af Coucy, og tóku þeir upp rímuna “Roi ne suis, ne Prince ne Duc ne Comte aussi; Je suis le sire de Coucy” - “Ég er hvorki kóngur né prins, né heldur hertogi né greifi; ég er herran af Coucy”