Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Jón Páll Sigmarsson (7 álit)

Jón Páll Sigmarsson Frægðarsól Jóns Páls Sigmarssonar skaust hratt upp á stjörnuhimininn og skein skært. Nánast hvert einasta mannsbarn þekkti hann og dáðist að framkomu hans og líkamlegu atgervi. Þessi frækni víkingur var glæsilegur fulltrúi lands og þjóðar þar sem hann sigraði hverja þjóðina á fætur annarri í keppninni um titilinn “sterkasti maður heims”. Í áratug var hann fremstur meðal jafningja og nánast ósnertanleg lifandi goðsögn.

Æska Jóns Páls og uppruni er þó fæstum kunn. Þessi ungi drengur kemur í heiminn árið 1960 en foreldrar hans höfðu þá þegar slitið samvistum. Snemma fékk hann að kynnast hinni hörðu lífsbaráttu og hlífði hann sér hvergi við hefðbundin búskaparstörf þrátt fyrir ungan aldur.

Lífið við Breiðafjörð var í senn erfitt og skemmtilegt. Frá tveggja ára aldri býr hann í Stykkishólmi en lífsbaráttan yfir sumartímann er í Skáleyjum hjá foreldrum Sveins Guðmundssonar fósturföður Jóns Páls. Í Skáleyjum þurfti Jón snemma að nýta sér líkamlegt atgervi sitt og óx honum ásmegin með ári hverju, blóðgrautur, selshreyfar, hrá egg og annað sem náttúran bauð uppá í bland við mikla vinnu, veiðar og bústörf mótuðu vilja og líkama þessa dáða drengs.

Þegar Jón Páll er kominn á unglingsárin flyst fjölskyldan til borgarinnar og Jón verður virkur þátttakandi í íþróttum. Árið 1975 sér Jón Páll auglýst lyftinganámskeið í sænska frystihúsinu og þar með hafði hann fundið sér farveg.

Líf Jóns Páls var sveipað ævintýraljóma. Hann var mikið í fjölmiðlum enda var hann hnyttinn og skemmtilegur í tilsvörum. Frægt var þegar Ómar Ragnarsson fór með honum til Gísla á Uppsölum og Gísla varð að orði: “Þú ert eins og hrísla í höndunum á Gísla”. Frægust og eftirminnilegust er þó setningin hans “Ekkert mál fyrir Jón Pál” sem hann sagði í miðri réttstöðulyftu með 362,5 kg í lúkunum, búinn að slá gildandi Evrópumet í beinni sjónvarpsútsendingu í Ríkissjónvarpinu.


Jón Páll markaði djúp spor í sögu þjóðar okkar þann stutta tíma sem hann lifði og var m.a. kosinn íþróttamaður aldarinnar af þjóðinni í Gallup könnun ekki alls fyrir löngu.

Tekið af www.jonpall.is

Gyllti áttavitinn (3 álit)

Gyllti áttavitinn Gyllti áttavitinn eftir Philip Pullman

I like big butts. (4 álit)

I like big butts. Gerð í tilefni afmælis vinkonur minnar sem er með junk in the trunk.

Ísland bezt í heimi (8 álit)

Ísland bezt í heimi Dund í jólafríinu

FrameDrum (6 álit)

FrameDrum Eitt elsta concept af trommuhljóðfæri. Kallast framedrum á íslensku, veit ekki hvað það kallast á íslensku.

ein svona smá aulaleg :D 8) (2 álit)

ein svona smá aulaleg :D 8) Ein svona smá aulaleg af mér og hestinum mínum síðan í sumar á hestamannamóti :D

Leikföng (16 álit)

Leikföng Hér má sjá báða gítarana mína:
Yamaha Sg 1000 og Schecter BlackJack ATX (nýji gripurinn)
og magnarinn minn: Marshall JCM 2000 Dsl 100

Enjoy.

Puma :) (1 álit)

Puma :) Þetta er hann Puma, kisustrákurinn minn, allur rafmagnaður í poka.

derp (17 álit)

derp Var að duela og einhverveginn agroa ég mottled boar og það endar á þennan skemmtilega hátt.

TolBarad Brúin á (4 álit)

TolBarad Brúin á Já fanst þetta dáldið skondið ss. TolBarad brúin á primetime á Full server. Náði bara svona helmingnum af fólkinu á mynd en laggið þarna minnir man helst á WG þarna alveg í birjuninni á WOTLK.

Fyrir þá sem ekki vita hvað er á seiði þarna þá er hægt að “bugga” TB ef þú kemst ekki inn til þess að fá honorið (þessi 1,8k sem fólk sækist svo eftir þegar maður vinnur sem atacking) með því að vera inná svæðinu þegar liðið þitt vinnur.
-Stafsetningarvillur, Stafsetningarvillur allstaðar!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok