Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Brotinn kassi (8 álit)

Brotinn kassi Mér til gífurlegrar mæðu sá ég áðan að gítarinn minn er brotinn. Viðurinn er brotinn í gegn, ljósglætur sjást í gegnum alla sprunguna ef horft er í gegnum búkinn. Haldiði að gítarsmiður geti lappað uppá hann eða er nýji gripurinn minn varanlega skemmdur?

Kveðja, einn grátandi

Pavor (25 álit)

Pavor Þýskur tekknískur death metal eins og það gerist best. Þeir hafa gefið út tvær plötur á 20 ára ferli. Bassaleikarinn er kolruglaður á bassann!

Mæli með þessu ef þið fílið t.d. Necrophagist. :)

http://en.wikipedia.org/wiki/Pavor_(band)

Þursaflokkurinn (8 álit)

Þursaflokkurinn Þetta er Þursaflokkurinn að spila lagið sitt ‘Þögull eins og meirihlutinn (Í Speglinum)’ í mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Rokk í Reykjavík. Textinn er eftir Einar Má Guðmundsson rithöfund.

Á mynd eru frá vinstri: Tómas M. Magnússon (bassi), Egill Ólafsson (söngur og hljómborð), Þórður Árnason (gítar) og Ásgeir Óskarsson (trommur).


Texti við ‘Þögull eins og meirihlutinn (Í Speglinum)’:

A
Mynd þín í speglinum
gæti eins verið Fréttamaðurinn á skerminum
verurnar sem hreyfast með glerinu.

Eða bara eitthvað
sem ímyndunaraflið ræður ekki við.

B
Farð'aldrei yfir á rauðu
græni kallinn í götuljósinu er vinur þinn
og hatrið í augum fólksins er bara plat.

Nei reynd'ekki að þræta
það eru þrjúhundruðsextíuogfimm dagar í árinu
og lífið er staðreynd.

C
Hvort sem þú notar málband
nýjustu uppgötvanir í sálfræði
eða reynir að cirka það út
er fjarlægðin á milli manna sú
sama og vegalengdin milli húsa.

En samt er einsog einsemdin
sé bara sérstök hlið á sjálfum sér.

D
Lærð' að nota blokkina
lyftuna sem gengur fyrir rafmagni
blokkina sem er rúðustrikuð síða í reikningsbók
ljósgráu mölina og fánann sem er jafn stoltur og þú
lærð að nota blokkina.

E
Þó póstkassinn sé alltaf tómur
ertu örugglega til það geturðu sannað
með löggiltum pappírum
skilvísum afborgunum af græjunum
og andardrættinum fyrir framan spegilinn.

Ef þú tryggir þig
er sjónvarpið óhult í stofunni
þú þarft ekki einu sinni að draga fyrir gluggann
til að heimurinn verði ljósblár í myrkrinu.

Þú ert seif einsog stórveldin
þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að einhver
setjist hinu megin við samningaborðið í huganum.

Niggerloop (12 álit)

Niggerloop Niggerloop

Darkfall (1 álit)

Darkfall Nice

triva (7 álit)

triva vitiði úr hverju þetta e

Can (8 álit)

Can Gæða Krautrock! Eins mikið experimental og það gerist.

Chris Garver (12 álit)

Chris Garver Uppáhalds flúrarinn minn úr Miami Ink. Reyni að horfa á þá þætti eins mikið og ég get, eini gallinn er hvað mig dauðlangar ennþá meira í flúr eftir að hafa horft á þessa snillinga :D

DJ in a box (14 álit)

DJ in a box Mæliði með þessu fyrir byrjendur? , keypt í Pfaff á 42.900

Þormóður tilnefndur sem íþróttamaður ársins (9 álit)

Þormóður tilnefndur sem íþróttamaður ársins Júdókappinn Þormóður Árni Jónsson er eini einstaklingsíþróttamaðurinn sem tilnefndur er sem íþróttamaður ársins að þessu sinni en útnefningin fer fram í hófi á Grand hóteli Reykjavík föstudaginn 2. janúar. Þormóður er jafnframt fyrsti júdómaðurinn í sextán ár til þess að komast inn á listann. Þetta hefur verið viðburðaríkt ár hjá kappanum því tveimur vikum áður en Móði keppti í +100kg flokknum á Ólympíuleikunum í Peking fæddist honum frumburðurinn Elías Funi. Að auki varð hann Norðurlandameistari á árinu og í þriðja sæti á Opna breska meistaramótinu. Þormóður býr sig nú undir að keppa á heimsmeistaramótinu sem fram fer um mánaðarmótin ágúst/september á næsta ári.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok