Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

The Greencastle Ghost. (27 álit)

The Greencastle Ghost. Þessar myndir voru teknar af tveimur mönnum, Terry Lambert og Guy Winters, sem skoðuðu gamalt yfirgefið hús í Greencastle, Indiana. Þeir fóru í leiðangur þangað um miðja nótt, eftir að hafa heyrt um að reimt væri þar, vopnaðir myndarvélum og upptökuvél.

Þegar þeir komu að húsinu eyddu þeir smá stund fyrir utan þar sem þeir tóku myndir af húsinu. Innfyrir var húsið algjörlega í niðurníðslu, engin húsgögn voru til staðar og gólfklæðnaður og veggfóður var að mestu leiti ónýtt. Eftir að hafa gengið um neðri hæðina í smá stund urðu þeir fyrir mjög óþægilegri tilfinningu eins og einhver væri að fylgjast með þeim. Annar þeirra byrjaði að heyra hjartslátt sem var ekki hans eigin og fannst eins og að hann væri að deyja. Þeir flúðu út eftir það og hröðuðu sér í burtu.

Eftir að myndirnar vorur skoðaðar kom í ljós margar mjög skírar myndir af draugum. Þar af þrjár myndir af sama drauginum horfandi út um glugga á efri hæð.

Myndirnar voru teknar með myndavél sem notar filmu og draugurinn kemur fram á upprunarlegu filmunni. Þegar sérfræðingur fór að skoða filmuna, breyttis andlitið á draugnum í hauskúpu sem gerði myndina andskoti drungarlega. Svarthvíta myndin sýnir hauskúpuna.

Undir venjulegum kringumstæðum fylgi ég tveimum reglum varðandi draugamyndir. Ef mennirnir voru að leita af draug þegar þeir tóku hana, þá er hún fölsuð. Ef myndin er of góð til að vera sönn, þá er hún fölsuð. Í þessu tilfelli erum við með menn sem voru að leita af draugum OG tóku myndir sem eru allt of góðar til að vera sannar en þrátt fyrir það þá kemst ég ekki hjá því að trúa að þessar myndir eru sannar.

Myndirnar þeirra og myndbandsupptaka kemur fram í heimildarmynd sem heitir World's Scariest Ghosts.

Rome: Total War (10 álit)

Rome: Total War Þessi mynd er úr online bardaga í Rome Total War milli Macedon og House of Julii og ég stjórna Macedon mönnum. Þetta var svolítið tricky að vinna þennan bardaga vegna hestalið House of Julii en það hafðist á endanum.

Kleópatra (6 álit)

Kleópatra Kettlingafulla veðikisan mín!

Þetta er önnur rottan sem hún hefur komið með heim.

Ný Göt (30 álit)

Ný Göt já fékk mér lowbrets, já veit að kúlurnar eru með vangefnar stærðir. Einnig er ég með 14 mm tunnel í báðum eyrunum mínum.

Mynd af mér (20 álit)

Mynd af mér Sketsuð mynd

N9911V (1 álit)

N9911V Cessna 180H á stuttri lokastefnu fyrir braut 01

Spunaspil (2 álit)

Spunaspil Og svo kalla þeir sem spila 2nd edition sig gamla í hettunni…

Kannabis (4 álit)

Kannabis Mynd frá samtökum í Bandaríkjunum sem berjast fyrir lögleiðingu marijúana í tilefni skrautlegra umræðna hér á huga.

trivia (20 álit)

trivia Gískið á hvaða tegund af bíl þetta er ;)

bolalda (6 álit)

bolalda þetta er ég að prófa 85 hjá bróðit minum
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok