Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Hugi.is (15 álit)

Hugi.is mér leiddist..

Geimverur (10 álit)

Geimverur Mér finnst þetta frekar spes tattoo, en samt rosalega töff.

Geðveikir litir, verð ég að segja.

Vuillemin aftur (16 álit)

Vuillemin aftur David Vuillemin Að stökkva

Telex (1 álit)

Telex Ein uppáhalds electronic hljómsveitin mín, hrikallega skemmtileg hljómsveit!
Þeir tóku þátt í Eurovision árið 1980 en komust ekkert sérstaklega langt…

Ég ætla að setja nokkur myndbönd hingað!

Moscow Discow
[youtube]http://youtube.com/watch?v=DFWdobNIcPQ

Twist a St. Tropez
[youtube]http://youtube.com/watch?v=J49XpGTHExk

Eurovision (lagið heitir það bara…)
[youtube]http://youtube.com/watch?v=6USa0zUMmqI

Vonandi líkaði ykkur vel við þetta!

JWST (5 álit)

JWST Nýr kíkir frá NASA í samstarfi við ESA og CSA(ASC) sem er áætlað að koma á sporbraut um jörðu árið 2013. Kíkirinn hlýtur heitið James Webb Space Telescope og á að taka við af HST. Hann er töluvert stærri eða 6,5m í þvermál á meðan HST er 2,4m og er því um 6 sinnum stærri. Einnig er hann gæddur góðum IR-búnaði.

Exodus 30 ára (3 álit)

Exodus 30 ára Fullt af stórafmælum núna. Platan Exodus eftir Bob Marley & The Wailers kom út þennan dag árið 1977 sem gerir hana 30 ára í dag !

Svona til að telja upp einhverjar viðurkenningar sem hún hefur fengið þá útnefndi Time Magazine plötuna þá bestu á 20.öldinni. Sjónvarpstöðin VH1 setti hana í 26.sæti yfir bestu plötur allra tíma. Og hún stendur í 169.sæti yfir bestu plötur allra tíma samkvæmt Rolling Stone tímaritinu.

RakRak og RemRem (11 álit)

RakRak og RemRem Veit ekki alveg hvað á að kalla myndina ^^; en það skiftir ekki.
Mega einfaldar og pixelaðar myndir af 2 fígurum sem eru krúttulegar, hope you like it :3

Adium (0 álit)

Adium Adium, snilldar forrit! htttp://www.adiumx.com/

Disinterment (12 álit)

Disinterment Graveyard Fornication…Brútal stöff.

Need for Speed: ProStreet (20 álit)

Need for Speed: ProStreet Electronic Arts afhjúpaði nýjasta leikinn í götukappakstursseríunni Need for Speed. Nýi leikurinn mun bera undirtitilinn ProStreet og mun koma út á PS2, PS3, PSP, PC, Xbox 360, Wii, DS og farsíma… eða með öðrum orðum öll hugsanleg tæki að mökkum undanskildum.

Það er EA Black Box í Kanada sem mun sjá um þróun leiksins og hafa þeir m.a. uppfært grafíkina frá NFS: Carbon talsvert, bætt gervigreind andstæðinga svo þeir verði jafnvel harðari í horn að taka en Vin Diesel sjálfur og svo hafa þeir bætt við nýrri tækni, autosculpt, sem gerir leikmönnum kleyft að móta útlit og eiginleika bílanna sinna.

Ofan á þetta allt saman kemur svo fjölspilun sem, að sögn EA, “mun endurskilgreina meininguna á bak við samkeppnisfélagsspilun”, hvað sem það í ósköpunum á að þýða. Aftur á móti er það þekkt hjá framleiðendum að nota stór orð í yfirlýsingum svo þessi setning gæti hugsanlega ekki haft neitt að segja…

Trailer http://www.ea.com/nfs/prostreet/home.jsp
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok