Þessa mynd teiknaði ég fyrir stuttu og prófaði að taka mynd af henni til að tékka hvort væri betra að sjanna eða ekki. En svo vildi það því miður til að hún fauk af svölunum heima hjá mér einn daginn, svo ég náði aldrei að klára hana. Ætlaði að láta james halla sér yfir stólinn og gretta sig. Oh, well. Hvað finnst ykkur?
Black Metal hljómsveit frá Frakklandi sem ég er farinn að hlusta æ meira á. Helvíti gott stuff. Mæli með að allir Black metal aðdáendur reddi sér Ô Laudate Dominvs, gæða stuff.
Jæja! Þá er ég loksins búin að láta jurtatattúið hverfa ;) Fór á House of Pain 26. júlí þar sem ég átti pantaðan tíma hjá Jason… Hann teiknaði þetta fríhendis á mig og tók síðan um 40 mín. að flúra það! Sársaukinn var nánast enginn (allavega miðað við hendina mína) og er ég mjööög sátt við þetta :) Jason is the man.. Og fyrir þá sem ekki vita þá er þetta merki sporðdrekans
Geggjað sænskt Black/Thrash metal band. Platan IXXI er ein af betri plötum sem ég hef hlustað á núna í ár. Meðlimir bandsins eru ekki af verri endanum, 3 meðlimirnir koma einmitt úr hljómsveitini Ondskapt sem er án efa eitt af því besta sem er að gerast í black metal í dag. Alveg eðal band sem þið verðið að kíkja á! Enginn meðalmennska hér á ferð!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..