Hérna er ég á fíl á Sirkús-sýningu í Danmörku…það var gaman sko.. 8-) ég var svona 5-7 ára hérna og ég man ekkert eftir Sirkúsina, ég man eftir fílinn! :D
Þetta er Ariel Atom. Hann er handsmíðaður af litlu fyrirtæki í Bretlandi sem hefur verið að hanna mótorhjól til fjölda ára, en hefur nú komið með bíl. Þetta er hinsvegar enginn venjulegur bíll. Hann inniheldur vél úr Hondu Civic Type-R en inniheldur einnig Supercharger sem gerir það að verkum að hann er að búa til 300 hestöfl. Hann er ekki nema 456 kg. að þyngd sem þýðir að hann er meira en 600 hestöfl á hvert tonn, sem er meira en Ferrari Enzo. Hann hefur 6 gíra + bakkgír og ef maður getur skipt um gír nógu snökkt, þá er hann 2,7 í hundrað kílómetra hraða á klukkustund. Það gefur honum þriðja sætið í fljótustu framleiðslubílum heims, Bugatti Veyron í fyrsta - 2.2 og Ultima GTR - 2.6 sec. Sem er frábær árangur miðað við að bíllinn kostar ekki nema 4.4 milljónir króna, og það besta er, hann er götuleyfður.