Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Bassaklarinett (11 álit)

Bassaklarinett Vegna þess að ég hef í gegnum árin séð lítið annað myndefni heldur en rafgítara, rafbassa og trommusett hér inni á /hljóðfæri þá ákvað ég að senda eina mynd af fjórum bassaklarinettum til tilbreytingar.

Frá vinstri:
- Leblanc L400
- Selmer USA 1430P
- CZ E. M. Winston
- Leblanc 330S

Fólk sem veit lítið um tréblásturshljóðfæri heldur oft að bassaklarinett séu eins konar saxafónar, en þessi hljóðfæri eru gjörólík - Hönnun saxafóna er „kónísk”, þ.e.a.s., frá munnstykkinu niður í hljóðfærið eykst borvíddin jafnt alla leið. Hönnun klarinetta er „symmetrísk”; frá munnstykkinu að bjöllunni er borvíddin jöfn, og bjallan er kónísk. Bjöllur bassaklarinetta eru oftast úr málmi, vegna þess að trébjöllur eru mjög erfiðar í framleiðslu, og rándýrar. Þær eru oftast uppsveigðar, til þess að auðveldara sé að sitja með hljóðfærið, og til að hljómurinn berist meira fram á við. Þegar staðið er með bassaklarinett er mælt með að notuð sé breið og mjúk hálsól, og þegar setið er með það er oftast pinni festur við bjölluna sem er látinn standa við gólfið til að auðvelda við spilamennskuna (það er vesen að spila þegar þumalfingur hægri handar heldur uppi fjórum kílóum).

Hljóðfærin tvö vinstra megin á myndinni spila niður á Des (lítil þríund fyrir neðan djúpa-E á gítar) og hin tvö sem eru hægra megin spila niður á B[es] (minnkuð fimmund fyrir neðan djúpa-E á gítar). Algengast er að ódýrari hljóðfæri spili niður á D eða Des og dýrari hljóðfæri spili niður á B[es]. Dýrari hljóðfæri, eins og nr. 1, 3 og 4 frá vinstri, eru oftast smíðuð úr afrískum svartviði eða ebóníviði, en ódýrari hljóðfæri eins og nr. 2 frá vinstri eru oftast smíðuð úr „resin”, sem er tegund af hörðu gúmmíi. Verðlag svona hljóðfæra er nokkurn veginn á bilinu 50.000 kr. (sum bandarísk resinhljóðfæri) upp í 1.000.000 kr. (Stephen Fox viðarhljóðfæri frá Kanada). Toppurinn í bassaklarinettunum er talinn vera þau frönsku Buffet-Crampon Prestige og Henri-Selmer Privilege og hljóðfæri hins ensk-kanadíska hljóðfærasmiðs Stephen Fox.

dótið mitt (29 álit)

dótið mitt þetta er allt dótið sem ég nota/notaði/á eftir að nota, ég var bara að gramsa í skápnum mínum og fann þetta allt :D

á mynd númer 1. :
1.1 = Nike Zoom Total 90 Supremacy FG (sem ég nota seinna)
1.2 = adidas predator absolute SG (sem ég er hættur að nota)
1.3 = puma TF
1.4 = Nike Tiempo Mystic FG (núverandi)
1.5 = adidas cupa mundial FG (skór sem ég litaði svarta og hvíta … og sem ég nota úti að leika mér)

mynd númer 2. :
2.1 = puma legghlífar

mynd númer 3. :
3.1 = Nike total90 (reyndar fake , en ég og vinur minn keyptum báðir allveg eins hanska uppá grín úti í englandi í fyrra)
3.2 = nike tiempo (fake sem ég er hættur að nota eeen þeir reyndust mér frekar góðir og ég mæli með þeim sem og ekta)
3.3 = lotto wetgrip ( þetta eru regnhanskarnir mínir )
3.4 = Nike Mercurial Vapor hanskar (geeeðveikir en gripið endist ekki lengi en komon ég fékk þá á 10 evrur)
3.5 = mitre 3d wrap og blablabla ( án efa bestu hanskar sem ég hef átt og dýrustu)

flott tjald? (17 álit)

flott tjald? mér finst ekki

Mín sýn á ísbirni (45 álit)

Mín sýn á ísbirni Ég tók mér það Bessaleyfi að breyta ísbjarnarmyndinni örlítið - svona í þá átt sem ég vil sjá ísbirni á Íslandi :)

Genki Sudo (12 álit)

Genki Sudo We are all one!

Nýjar Slipknot Grímur (28 álit)

Nýjar Slipknot Grímur Hérna er nýja gríman hans Joey.. Hægt er að sjá allar á spinner.com bara í dag

Mér finnst coreys gríma ljót

Trivia (12 álit)

Trivia hver er svo maðurinn :P

Orlando Bloom (1 álit)

Orlando Bloom Fallegasti maður í heimi ..!

Eva Atkins (0 álit)

Eva Atkins kona sem ég er nýbúin að senda í keppni á sims-blogg ..

Scrubs (19 álit)

Scrubs Very mjög good þáttur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok