Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

World Narcosis sjötomman er komin út. (1 álit)

World Narcosis sjötomman er komin út. www.worldnarcosis.bandcamp.com

Pétur Pan (1 álit)

Pétur Pan Frændi (sonur bróðir mömmu) ákvað að púlla Pétur Pan.

Sjálfsmynd (6 álit)

Sjálfsmynd Sjálfsmynd sem ég teiknaði eftir spegli í anatómíu/módelteikningu í VMA. Vinstra augað misheppnaðist eitthvað rosalega, haldið bara puttanum fyrir það þá lookar hún betur :P

James Cameron/Tom Hooper (2 álit)

James Cameron/Tom Hooper Ég hefði komið með betri mynd ef ég hefði nennt að leita meira.

En eru fleiri en ég sem finnst Tom Hooper vera drullulíkur James Cameron? Fyrir utan auðvitað næstum 20 ára aldursmun.

Kominn Hringinn :) (31 álit)

Kominn Hringinn :) Nýji Bassmanninn minn.
Ég er búinn að vera friðlaus síðan ég lét síðasta Bassman frá mér. Í millitíðinni er ég búinn að prófa og eiga allt milli himins og jarðar. Nú er vonandi leitinni lokið fyrst að maður er kominn aftur hringinn til baka. Nú er bara spurning hvort maður eigi ekki að spjalla við hann Þröst magnaragúrú og láta hann “Redwinga” hann upp ;)

Midas Pro series training course (1 álit)

Midas Pro series training course Mynd sem ég tók á Midas Pro Training course í gær. Fjórir Midas Pro9 (sem komu allir úr Hörpu). Það voru reyndar bara tveir þeirra fulltengdir, tveir voru bara control surfacið (engir DSP og engin input module) því það var búið að installa meirihlutanum í Hörpu.

Námskeiðið var mjög fræðandi og skemmtilegt, ekki bara um Pro línuna, heldur bara Midas yfir höfuð, og hvernig þróunarferlið hjá þeim gengur fyrir sig. Farið var yfir alla helstu hluta Pro línunnar og útskýrt hvernig ýmislegt var hugsað og hannað. Svo fengu allir smá Hands-on með mann frá midas í kallfæri ef manni vantaði eitthvað.

Ég var á CMDU námskeiðið, sem er “User training” en einnig fóru sumir á CMDSE, sem er fyrir “System Engineer” þar sem farið er nánar í uppsetninu, troubleshooting o.fl. og er ætlað fyrir Eigendur og umsjónamenn.

Íþróttir og sterar (95 álit)

Íþróttir og sterar Maðurinn á myndinni er Dwight Howard, atvinnumaður í NBA. Hann er 2.11 á hæð og 120 kíló. Hann spilar 82 leiki á leiktíð (svona um það bil 1 leikur á 3 daga fresti) og svo lyftir hann og æfir á milli leikja. Margir neita að trúa að íþróttamenn séu “að djúsa” en er hægt að leggja svona mikið álag á líkamann án þessa að vera á einhverjum hjálparefnum? Og ef það er ekki hægt, eru þá allir þessir góðu íþróttamenn heimsins komnir á stera?

LG G-Slate (2 álit)

LG G-Slate LG fer að gefa út LG G-Slate, þetta beast mun hafa:
Nvidia Tegra 2 1Ghz dual core örgjörva.
1280x768 pixla 3D skjá(þarf ekki gleraugu)
Gyroscope, accelerometer
Innbyggt 32Gb geymslu pláss
" myndavélar aftan á til að taka 1080p 3D video
Og notar Android 3.0 Honeycomb

Ekki er kominn official útgáfu tími (ég hef alla vega ekki fundið það).

Anderson (6 álit)

Anderson ….

Tol'vir Pot stacking! (10 álit)

Tol'vir Pot stacking! Finnst svo óendanlega gaman að poppa tol'vir pots í heroics með bloodlust. Að ég hreinlega get ekki hætt að framleiða þau, í full miklum mæli.

Char: http://eu.battle.net/wow/en/character/nordrassil/methylene/advanced

Armory sýnir einhverra hluta vegna ekki rétta statta, er með 1326 hit rating. Ekki það sem stendur þarna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok