Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Sauður í úlfsgæru (2 álit)

Sauður í úlfsgæru Árið 1940 þegar Orrustan um Bretland stóð sem hæst og gekk fremur brösuglega fyrir Þjóðverja, er sagt að Hermann Göring yfirmaður Luftwaffe (þýska flughersins) hafi boðið nokkrum helstu flugköppum sínum til óformlegs spjalls. Göring spurði hvort það væri eitthvað sérstakt sem hann gæti gert til að aðstoða þá í baráttunni.

Adolf Galland, einn af mestu “ásunum” sagði þá eitthvað á þá leið: “Það væri kannski helst að þú gætir reddað okkur nokkrum flugsveitum af Spitfire-vélum!” Göring fannst þetta víst ekkert sérlega fyndið tilsvar, og engar pantanir frá Luftwaffe bárust bresku Spitfire-verksmiðjunum :D


Með því er þó ekki sagt að Luftwaffe hafi ekki tekið eitt og eitt eintak af þeirri frægu orrustuflugvél í notkun það sem eftir var stríðs. Þótt reynt væri eftir fremsta megni - af öllum stríðsaðilum - að forðast slíkt, var óhjákvæmilegt að einhver eintök af nýjustu og bestu flugvélunum kæmust lítt- eða óskemmd í óvinahendur.

Eintök af nánast öllum algengustu herflugvélum Bandamanna komust í hendur Þjóðverja. Þær voru að sjálfsögðu þaul-prófaðar af þýskum flugmönnum til að kynnast eiginleikum þeirra og þá sérstaklega veikleikum. Sumar þeirra voru síðan notaðar í þjálfun flugmanna og einnig í ýmis “sérverkefni”, sum há-leynileg og reyfarakennd. Heil flugsveit, nefnd KG-200, var stofnuð gagngert í þeim tilgangi.


Myndin er af einni þeirra Spitfire-véla sem hlutu þessi örlög. Takið eftir tvennu: Í fyrsta lagi hreyflinum, sem er þýskur, sömu gerðar og sá sem notaður var í Messerschmitt 109, frægustu orrustuvél Þjóðverja. Upprunalegi Rolls-Royce Merlin hreyfillinn hefur líklega eyðilagst í brotlendingunni. Og í öðru lagi, hversu óvenju stór og áberandi þýski járnkrossinn er á búknum. Það er vafalaust gert í þeim tilgangi að koma í veg fyrir augljósan misskilning þýskra flugmanna sem etv myndu rekast á þessa vél á flugi, enda þýskar Spitfire sjaldséðir hrafnar, furðufuglar kannski!

Fleiri svipaðar myndir má svo finna á: http://rareaircraf1.greyfalcon.us/Captured%20Allied%20Aircraft.htm

TF-SBF (0 álit)

TF-SBF Þarna er svifflugan TF-SBF (K8) hjá Svifflugfélagi Akureyrar á leið í loftið frá Melgerðismelum (BIMM). Held að þetta hafi verið fyrsta svifflug SFA árið 2008.

Kona (5 álit)

Kona Kona sem ég bjó til í Bodyshop.


Hvernig finnst ykkur????

Mega svipur (45 álit)

Mega svipur Greyið gaurinn, alltaf að kúka á öllum myndum.

Nýji Paddzinn ftw (5 álit)

Nýji Paddzinn ftw Syndandi mount.

Lucy <3 (2 álit)

Lucy <3 English springer spaniel tíkin mín, hún Lucy :)

skid row (12 álit)

skid row best í heimi…..skid row með sebastian bach

Arctic úlfur (6 álit)

Arctic úlfur Arctic úlfur á hlaupum í snjó.
25x45cm strigi, málað með akrýl. - 15.000.k

Gatið mitt. (24 álit)

Gatið mitt. Fékk þetta þann 6 april hjá henni Beggu[PTL]:*

hvað finnst ykkur mest töff af þessu? (39 álit)

hvað finnst ykkur mest töff af þessu? á henni semsagt.. persónulegt álit mitt er bleika;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok