Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Coincidence? I think not! (22 álit)

Coincidence? I think not! Þegar litið er yfir alla leiðtoga Rússlands síðan á síðari hluta 19.aldar má sjá það skemmtilega munstur að þeir skiptast alltaf á að vera með hár og skalla. Það er einnig eftirtektarvert hvernig þeir virðast skiptast alveg á, mann við mann, hvort valdaskeið þeirra hafi verið tími stöðnunar eða framfara. Vissulega er þetta ekki algilt, tildæmis var valdaskeið Leníns ekki stöðugar framfarir, allavega ekki ókeypis framfarir og þrátt fyrir að Stalínstíminn hafi verið eitt mesta og grófasta skeið pólitískrar stöðnunar í sögu Sovétríkjanna þá var þar mikið um tækniframfarir og annað í þeim dúr. En þetta gefur grófa mynd af þessu munstri framfara og staðnana sem skemmtilegt er að velta fyrir sér.

Í stuttu máli má sjá þetta fyrir sér svona:
Vart þarf að minnast á hina gríðarlegu stöðnun rússnesks þjóðlífs á tímum Nikulásar II, og hinna miklu pólitísku og þjóðfélagslegu breytinga og framfara sem áttu sér stað á valdatíð Leníns, sem svo var skrúfað fyrir á tímum Stalíns og tekið skref afturbak í gamla farveginn. Krútsjov reyndi að leiða Sovétríkin af braut Stalíns með pólitískum endurbótum sínum en eftir að hafa verið bægt frá völdum tók við tuttugu ára skeið pólitískrar- og efnahagslegrar stöðnunar Brézhnevs. Andropov reyndi að koma af stað endurbótum í samvinnu við Gorbatsjov en dó fljótlega og við tók Brézhnevistinn Tjernenkó. Vart þarf svo að taka fram endurbótagleði Gorbatsjovs, en hliðstæðu við breytingar hans verður varla fundin nema farið sé aftur til byltingarinnar.

Eftir fall Sovétríkjanna tók við stöðnunarskeið Jeltsíns þar sem rússneskt þjóðlíf og efnahagslíf var að niðurlotum komið, svo ekki sé minnst á stjórnarhætti hans. Í stjórnartíð Pútíns varð Rússland aftur heimsveldi, ekki aðeins hernaðarlegt heimsveldi heldur einnig efnahagslegt stórveldi (þó hins vegar megi maður vera var við pólitíska stöðnun í stjórnarháttum Pútíns). Forsetatíð Medvedevs hefur ekki verið svo löng að á hana megi varpa sögulegu ljósi, en víst er að alheimskreppan ber að dyrum í Rússlandi og ekki alls kostar óvíst að valdatíð Medvedevs verði minnst sem efnahagslegrar stöðnunar.

Nú er ég reyndar hef ég ekki kynnt mér Alexander II keisara mikið og ætla ekki að fullyrða að í hans stuttu valdatíð hafi verið mikið um dýrðir en hann var allavegana með skalla.

Erfið Trivia? (14 álit)

Erfið Trivia? MArgir Þungavigtarmenn í kvikmyndaheiminum. þekkir þú andlitin?

Heit Veek @ Jacobsen (0 álit)

Heit Veek @ Jacobsen

Dennis Leary (3 álit)

Dennis Leary Meistari.

Rebellion (12 álit)

Rebellion Sagas Of Iceland.

Geek Tattoo's á heitum gellum (29 álit)

Geek Tattoo's á heitum gellum Nördar eiga að þekkja þetta.

Gibson SG-X (24 álit)

Gibson SG-X Þetta er fyrsti og uppáhalds rafmagnsgítarinn minn. Gibson SG-X 1999 model. Sagan á bak við þennan er sú að þegar það átti að ferma mig var manni lofað rafmagnsgítar sem maður mátti velja sjálfur. Pabbi og ég tókum okkur sér ferð suður til að velja einn slíka.
Fyrst förum við í rín og mér langar feit í einn SG. fjármagnið hans pabba var svona 60 þús kall. Þar var einn Epihpone Sg man ekki nákvæma týpu en hann kostaði 60 þús ég fékk að prófa hann og ég sagði bara piff það var skítur og lagði hann frá mér. Svo sá ég þennan og bað svona upp á djókið að prófa hann. Stax og ég fékk hann í hendurnar vissi ég að þetta var bara einn af þeim bestu gíturum sem ég hef prófað en pabba þótti fáranlegt að kaupa notaðan gítar. Þannig hann sagði að við ættum að skoða í aðrar búðir. Ég prófaði marga gítar fender deluxe mim og esp/ltd Viper og mörg eðal hljóðfæri en ekkert var rétt þannig pabbi féll á þennan.

þessi gítar er einstakur fyrir gibson því hann er með 24 bönd jumbo og tilfinninginn á hálsinum er ekki eins og flestir SG gítarar margir hafa sagt að hálsinn er það sem gerir þennan gítar einstakan og ég tek undir það. Hann er fjólublár og með sex pistols límiða á sér því það stendur tommy hifigher á búknum en mér er reyndar alveg sama því þetta er reyndar það góður gítar. og mér finnst hann reyndar töff sjálfur ;D

en já þetta er mjög góður pickupp fínn í tónlistina sem ég spila og blues og virkar í mörg tónlistarsvið.

gaman að minnast á það að ég held að þessi gítar er sá eini sinnar tegundar á íslandi.
þeir voru framleyddir í limited útgáfum sumarið 1999-2000 skilst mér.

Búkurinn og háls er mahony, set nec rosewood fingraborð, man ekki hvernig brigepickupp er í gítarnum, tune o matic brige, einn volium og einn tone og spil coul swicht.

danke

Shed

TF-NPK (4 álit)

TF-NPK Palli Sveins ný búinn að snerta braut 01, í dag

Lamborghini - Signature Keppni (7 álit)

Lamborghini - Signature Keppni Lamborghini signature

o.o (13 álit)

o.o störukeppni? einhver? :D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok