Hehehe..='D
Var byggt í kringum 1650 í Agra, Indlandi. Mógúlakeisarinn Shah Jahan lét byggja þessa fallegu byggingu sem grafhýsi fyrir eiginkonu sína. Fólk hefur velt því lengi fyrir sér hvað það sé sem geri þessa byggingu svona fallega. Sumir segja samræmið milli garðsins og byggingarinnar, aðrir hversu umfangsmikil hún er og stór, og enn aðrir segja að hugarfarið hjá Mógúlakeisaranum geri hana svona fallega. Maður sem ferðast um alla Asíu til finna efni í hús yfir látna konu sína. Mjög rómantískt. Mér finnst þetta síðastnefnda. Hvað finnst ykkur?
Angkor Wat var/er musteri í Angkor, Kampútcheru (Kambódíu) og var byggt á 12. öld af Surjavamani II kóngi til að vera konungshöll og þjóna þjóðtrúnni, hindúisma. Tveimur til þrem öldum seinna var Angkor Wat umbreytt í búddhistamusteri. Angkor Wat er mjög flókin bygging með fimm “turna” og mikið verkfræðiundur. Í dag reyna menn hvað þeir geta til að viðhalda byggingunni fallegu til að halda áfram tilbiðslu þar. Í dag er þetta mesta túristasvæði í Suðaustur-Asíu og ferðamönnunum fjölgar ár frá ári.