Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Þingvalla urriði (5 álit)

Þingvalla urriði Hér er Jóhannes nokkur með einn af “vinum” sínum.

Nánar um málið má lesa hér http://www.veidikortid.is/Pages/16?NewsID=580

11 ný belti í Mjölni, þar af eitt fjólublátt! (0 álit)

11 ný belti í Mjölni, þar af eitt fjólublátt! Í gær var stór dagur hjá Mjölni. Fyrst mættu um hundrað manns á æfingu kl. 18:00 þar sem alls ellefu manns voru látnir þreyta “Iron-man” þolraun þar sem þeir glímdu við nýja og ferska æfingafélaga í um tuttugu mínútur hver án þess að fá hvíld. Að því loknu var tíu þeirra gefið bláa beltið og sá ellefti, Sighvatur Helgason, fékk fjólubláa. Sighvatur er aðeins 17 ára og eins og flestir muna þá keppti hann í fullorðinsflokk á Opna Skandinavíska þar sem hann fór með sigur úr bítum.

Á myndinni eru þeir sem fengu beltin ásamt þremur þjálfurum. Á myndina vantar Tómas Gabríel sem fékk blátt belti í gær. Á myndinni eru eru:
Efri röð: Vignir Már (blátt), Sigurjón Viðar (blátt), Sighvatur (fjólublátt), Stefán Geir (blátt), Jósep Valur (blátt), Axel (blátt) og Pétur Marinó (blátt).
Neðri röð: Tómas Hrafn (blátt), Daníel (þjálfari), Bjarni (þjálfari), Gunnar (þjálfari), Halldór Már (blátt) og Davíð (blátt).


Við óskum þessum nýju blá- og fjólublábeltingum til hamingju með árangurinn.

Eftir æfinguna tilkynnti stjórn Mjölnis að von væri á James Davis aftur til Mjölnis. James er félagsmönnum vel kunnugur og kenndi þrjá mánuði hjá félaginu við miklar vinsældir í fyrra. Nú stefnir hann á að vera í a.m.k eitt ár.

Stórtíðindi kvöldsins voru svo að Mjölnir er að fara að stækka! Við höfum tryggt okkur húsnæðið við hliðina á okkar húsnæði og fáum það afhent um mánaðarmótin. Þá tökum við niður veggina og klárum að innrétta í desember ef vel gengur. Þetta er meira en 50% stækkun á æfingaplássinu!

Mjölnir er því stærsta MMA gym á Íslandi með:

* 550m2 gym.
* Tveir stórir salir. Sem hægt er að sameina í einn risa sal.
* Alvöru keppnisbúr (octagon)
* Fullkomin aðstaða fyrir réttstöðu, hnébeygju og bekkpressu.
* 200 Ketilbjöllur
* Pro aðstaða fyrir MMA
* Stór Clinch veggur
* Ótal önnur æfingartæki tengt bardagaíþróttum og functional strength
* Gufubað
* Búningsklefar og sturtur
* Setustofa með flatskjá þar sem hægt er að horfa á alla helstu MMA og BJJ viðburði.

Sjá nánar frétt á vefsetri Mjölnis.

Kallinn bara ánægður með þetta (2 álit)

Kallinn bara ánægður með þetta Sá þessa mynd og fannst þetta nokkuð skondið.

Það var semsagt einhver Linux ráðstefna í Japan, og Microsoft hafði sett upp Win7 bás hinum megin við götuna. Þá fékk einhver gæji Linus sjálfan til þess að pósa svona fallega.

http://www.neowin.net/news/main/09/10/23/linux-creator-linus-torvalds-gives-windows-7-a-thumbs-up

hrúturinn í 3D (3 álit)

hrúturinn í 3D mer leiddist í autocad tíma

Sectar Ui (14 álit)

Sectar Ui Mynd: Myndin má ekki vera stærri en 1024x768 Wtf buin að minka hana í 100x100.

anyway

http://img16.imageshack.us/img16/799/25669239.jpg

Dream Theater - Images and Words (11 álit)

Dream Theater - Images and Words Önnur plata progressive metal sveitarinnar Dream Theater, sú fyrsta með hinn kyngimagnaða söngvara James LaBrie um borð.

Tóndæmi:

[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=saiVkeI9_EQ

Að lokum já… meh, góð plata með góðri sveit?

Heitt... (12 álit)

Heitt... Þessi gerir geirvörturnar mínar bláar.

MAKERxOFxBABIES (16 álit)

MAKERxOFxBABIES Ég lofa, ég er ekki að trolla. “Ekki horfa svona á mig MAKERxOFxBABIES, þú veist það vel sjálfur að notendur hafa neikvæðar skoðanir á þér”. MAKERxOFxBABIES svarar :“kannski, en þú samþykkir þó myndirnar mínar.”.
Hahahahaha ;) þessir huganotendur geta verið algerir ólátabelgir ef þú gefur þeim kryddið í það! ;)

TF-FRK (2 álit)

TF-FRK Cessna 172N sem er í eigu Flugklúbbs Flugskóla Íslands

Var að prófa nýtt leikkerfi.. (2 álit)

Var að prófa nýtt leikkerfi.. Fyrsti leikur, áður en ég byrja nokkuð að krukka af alvöru í team instructions, og ekki á neinum tímapunkti með 11 sterkustu saman inni á.. Get ekki sagt annað en að ég hafi góða tilfinningu fyrir titilvörninni :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok