Ég ákvað að reyna að greina sköpunarferlið mitt með því að setja það upp í svona kort sem tengdi saman helstu aðferðir til að fá hugmyndir, hvaðan hugmyndin kemur. Í raun hvert sköpunarferlið er frá upphafi til enda.
Þetta er annar að tveim kettlingum sem ég er með í fóstri eins og er. Hún er 3 vikna gömul þarna. Hún á það til að troða sér inn á alla staði sem hún kemst, er alveg svakalega frek við litla bróður. Annars skemmtilegur karakter.
Hana mun vanta nýtt heimili í byrjun Mars, þá fer hún ásamt bróður sínum og mömmu í Kattholt (þar sem þau fæddust) og verða þau þá öll tilbúin til ættleiðingar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..