Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Effektabrettið (25 álit)

Effektabrettið Þetta er effektabrettið mitt. Er búin að vera að dunda mér við að setja púsla þessu saman, tengja og raða öllu upp.
Þetta er Road Ready taska sem ég fékk í Hljóðfærahúsinu (Pfaff flytja þetta inn), ég er mjög ánægður með hana. Sterk, ekki of þung og mjög sniðug ef þú villt ekki vera með snúrur og vesen útum allt á brettinu þínu :)

Var að ljúka við þetta núna um daginn og held að ég gæti ekki verið mikið ánægðari með útkomuna.
Hörku sound, suðar lítið sem ekki neitt og þægilegt að komast í alla effektana (raðaði þeim auðvitað þannig að auðveldast er að komast að þeim sem ég nota mest).

Ég notaði aðallega Planet Waves patch snúrur sem maður setur saman sjálfur til að tengja þá saman, mæli sterklega með þeim.
Ræður algerlega hvernig snúrurnar er á brettinu hjá þér með þeim (lengd, hvernig þær liggja og hvernig hausarnir snúa). Svo er ég líka með nokkrar Fender 1ft. Koil Kord patch snúrur.


Röðin á effektunum er svona:

- MXR Boost/Line Driver (nota hann til að keyra aðeins upp signalið úr bassanum í gegnum keðjuna)

- EHX BIG MUFF Pi U.S.A. (Fuzz, lítið fuzz en dimmt og þungt sound)

- EHX Big Muff Pi USSR (Fuzz, mikið fuzz, meira treble, þungt en sker vel í gegn)

- Dunlop CryBaby (Bass Wah, nota hann á eftir fuzz effektunum til að fá greinilegra wah sound úr honum)

- Digitech Whammy (nýjasta nýtt á brettinu, mjög skemmtilegur effekt sem ég á eftir að grúska aðeins betur í)

- MXR Stereo Chorus (Chorus, nota hann aðallega til að fá aðeins stærra sound, bæði clean og með drive)

- EHX BassBalls USSR (Twin Dynamic Filter, envelope filter, mjög einkennilegur og “funky” effekt, er einnig með distortion rofa sem eykur bara á geðveikina í þessum pedal)

- EHX #1 Echo (Delay, <– segir sig eiginlega sjálft, get líka notað hann til að búa til skemmtilega skrítið reverb)

- Ernie Ball VP Jr. (Volume Pedal, góður, nettur og sterkur volume pedall)

- Boss TU-2 (Chromatic Tuner, eini pedallinn sem ég gæti ekki verið án, mjög góður tuner sem er alveg brilliant að vera með þegar maður er að spila live, á æfingu eða bara heima)

**- Svo nota ég DC Brick til að fá straum í allt (nema Whammy og Big Muff Pi USSR, þarf sér straumbreyti fyrir Whammy (PS0913B) og battery fyrir Big Muff (ekkert tengi fyrir straumbreyti)


…þetta er brettið mitt. Ef það eru e-r spurningar þá spyrjið mig bara :)

Mótmæli komu Condoleezu Rice (9 álit)

Mótmæli komu Condoleezu Rice Veit einhver hvaða taska þetta er ???

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/05/30/famenn_motmaeli_vid_radherrabustadinn/

Size buffed tauren (11 álit)

Size buffed tauren Size buff sem eg fekk i Durotar, ap+ size potion sem eg fekk i winterspring og sidan bloodlust :) thetta er ekki photoshoppad!

Metalocalypse (9 álit)

Metalocalypse Þættir á Adult Swim sem kallast Metalocalypse og fjalla um hljóm sveit se heitir Dethklok. ég veit að þetta er stafsetningarvilla, an það á að skrifa það svona.

Gunnarsstimpillinn (17 álit)

Gunnarsstimpillinn Nú hefur /sorpinu opinberlega veist Gunnarsstimpillinn….Því Gunnar fílar okku

Tupac Amaru Shakur <3 (19 álit)

Tupac Amaru Shakur <3 Hinn einni sanni Tupac shakur <33

BRABUS (18 álit)

BRABUS fékk mer þetta síðast laugardag 17.05.08

Mercedes Benz C320 BRABUS 2001.árgerð

þessi bíll sem ég fékk, var í eigu forstjóra PIRELLI dekkjaframmleiðanda og hann lét breyra honum hjá BRABUS, það þarf að laga felgunar á þessum og sprauta framm og afturstuðara allavega! til að gera hann eitthvað flottan, en þó hann er geðveikur samt get bara ekki verið sáttari með hann…

Hjólið mitt Trek Jack 2 (9 álit)

Hjólið mitt Trek Jack 2 jæja hvernig líst ykkur á hjólið

smá Spec.

Stell:Trek Jack 2.
Framm dekk:Bontrager Earl.
Aftur Dekk :Bontrager Earl.
Stýri:Bontrager Big Earl.
Stammi:Bontrager Earl.
Fram gjörð: Sun Rims Ditchwitch.
Aftur gjörð: Sun Rims Ditchwitch.
Aftur hub: Shimano.
Framm hub: Shimano.
Aftur bremsa:Hayes Mag.
Framm:engin núna en annars er Hayes Mag.
Grip:man ekki hvað þau heita en það er lock on.
Hnakkur:Bontrager.
Pedalar:Rauðir Odyssey.
Sveifar:Bontrager Big Earl.
Keðjuhlíf:E.thirteen(stór svört).
Dempari:Manitou Splice.
Gírar:single speed.
Keðjustrekkjari:grár surley

Hjólið er til sölu vil bara fá Tilboð

Napalm Death (5 álit)

Napalm Death Finnst þetta band hafa orðið svolítið útundan hérna á Huga, klassískt grindcore sem ALLIR eiga að hafa heyrt allavega einu sinni á ævinni.
Persónulega finnst mér Harmony Curroption besta platan þeirra, en annars eru þær flestar nokkuð góðar..
Mæli eindregið með að þeir sem hafa ekki hlustað á þá kíki á þá á youtube eða eitthvað, og þið VERÐIÐ að hlusta á You Suffer..Þá getið þið dáið hamingjusöm =)

Dali hátalarar (9 álit)

Dali hátalarar DALI - CONCEPT1
100w Hátalarar - Concept Línan

* 100w Hátalarar
* Ráðlögð magnarastærð: 25-100w
* 8 Ohm
* Tíðnisvið 62.5Hz-22.5kHz
* Næmni 87dB
* Hámarkskeyrsla 106dB
* Mál (hxbxd): 31x17x19
* Þyngd per stk. 4kg

Ég var að fá mér svona, endilega segðu þitt álit á þessum ef þú hefur reynslu af þeim:D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok