Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

graff :P (12 álit)

graff :P gerði þetta um daginn með honum pabba mínum :P fyrsta skiptið sem hann spreyjar og fyrsta skiptið eftir laaaangann tíma sem ég spreyja :P mér fanst þetta ganga alveg fínt en endilega kommentið ;)

Kennedybræður (8 álit)

Kennedybræður Hér sjást Kennedybræðurnir frægu – John, Robert og Edward (kallaðir Jack, Bobby og Ted). Elsti bróðirinn, Joseph jr. féll í Seinni heimsstyrjöldinni.

Annars voru bræðurnir fjórir úr stórum systkinahópi, enda fjöldskylda þeirra írskir kaþólikkar. Fjölskyldufaðirinn Joseph Kennedy hafði fyrr á öldinni komist til ríkidæmis og valda í Boston, á vafasaman hátt töldu margir. Hann vænti stórra verka af sonum sínum, helst ekkert minna en forsetaembættið.

Gamla manninum varð síðan að ósk sinni árið 1960 þegar Jack, sem þá hafði verið þingmaður í nokkur ár, náði naumlega kjöri í forsetakosningum. Varð hann svo einn af dáðustu bandaríkjaforsetum fyrr og síðar, þó umdeildari hafi síðar orðið. En eins og við vitum endaði forsetatíð hans á hörmulegan hátt þremur árum síðar.


Bobby hafði verið dómsmálaráðherra í stjórn bróður síns, en var kosinn á þing eftir að hafa verið ýtt útúr Johnson-stjórninni. Það kom engum á óvart þegar hann lýsti yfir framboði sínu til forseta árið 1968. Telja margir að hann hefði orðið betri forseti en Jack, sérlega á þeim erfiðu árum sem voru í vændum. En af því varð ekki, því áður en hann náði tilnefingu Demókrataflokksins hlaut hann sömu örlög og bróðir sinn fimm árum áður.


Ted hafði í samanburði við bræður sína allaf verið “svarti sauðurinn”. Gekk ekki jafn vel í skóla og hafði lag á að koma sér í allskonar klandur. Einhverjir vildu endilega munstra hann í forsetakosningar 1972, en þær vonir urðu að engu þegar hann kom sér í enn eitt klandrið, með ölvunarakstri sem kostaði unga konu lífið. Önnur atlaga hans að forsetaframboði, árið 1980, var herfilega misheppnuð og fjaraði fljótt út.

Þrátt fyrir þetta hefur Ted Kennedy átt sitt örugga fylgi í þingsæti undanfarna áratugi. Hefur hann öðlast virðingu fyrir þingstörf sín, en þar þykir hann mjög frjálslyndur og leggur oft óvinsælum málefnum lið. Var t.d. gallharður á móti Írak-stríðinu 2003, ólíkt flestum Demókrötum sem lúffuðu fyrir Bush og greiddu stríðinu atkvæði sitt. Nú berast fréttar af hrakandi heilsu hans, en víst er að stuðningsmönnum þætti illt að missa þennan síðasta Kennedybróður alveg strax.

Deku Link (7 álit)

Deku Link úr LoZ:Majora's Mask

Frábær leikur að mínu mati :)

Hjartaaugu (15 álit)

Hjartaaugu Jamm hérna er þetta before and after, tók svo dagsettninguna af.

Samurai Champloo (10 álit)

Samurai Champloo Þetta eru svo frábærir þættir.

0mG (38 álit)

0mG já ég lenti í þessu :(

Guðbjartur - mr.t (35 álit)

Guðbjartur - mr.t Þetta ku vera mr.t sjálfur, bróðir LSD electro(hardcore?).

Sent með hans leyfi btw, hann situr við hliðina á mér.

Glorior Belli - Manifesting The Raging Beast (5 álit)

Glorior Belli - Manifesting The Raging Beast Black Metal band frá Frakklandi.
Bandið er stofnað árið 2002, og gáfu þeir út sitt fyrsta demo árið 2003 (Evil Archaic Order).
Manifesting The Raging Beast er nýjasta verk þeirra en hún kom út í fyrra.

Eins og ávallt eru Frakkar með gæða Black Metal og Glorior Belli sýnir það algjörlega.
Diskurinn er helvíti góður og hljóðfæraleikur framúrskarandi. Söngurinn er hrár og dimmur og textarnir djúpir og flottir.


Lineup:
Infestuus - Söngur, gítar, live bassi.
Alastor - Live gítar.
M:A Fog - Trommur.
Antares - Live trommur.
Haaske - Live gítar.

Lagalisti:
1.From Darkness There Springs Light - 05:47
2.Deadly Sparks - 04:09
3.Sinister Resonance - 05:03
4.Severed From the Self - 04:51
5.Manifesting the Raging Beast - 03:37
6.Said Lucifer In Twilight - 05:58
7.Serpentine Admonition - 04:07
8.Altered Verses - 06:47

Myspace:
http://www.myspace.com/gloriorbelli

Linkur á download:
http://www.megaupload.com/?d=KKCBF5LU

Gott band.
Mæli með þessu.

Breyting á lit.. (7 álit)

Breyting á lit.. Kvistur frá Þúfu, að skifta yfir í sumarfeldinn.

Hvernig myndiru lýsa honum í lit, núna?

Kvistur er ávalt að verða myndalegri og fallegri með árunum. Hann var ekkert voða myndarlegur í fyrra, greyjið. Og hann er ekki jafnt feitur og í fyrra.

Það verður byrjað að temja hann eftir LM.. Síðan tek ég hann inn í Víðidal og verð með hann þar allavega í 2-4 vikur. Gera hann veraldarvanann og síðan það sem er eftir sumarið þá fer hann á Villó og ég tek hann með upp í fjöll. Verð með hann þar í tvær vikur. Og á næsta ári verður hann tilbúinn í leitir og smalamennskur, og meðal annars, kannski eitthvað efni í keppni? ^^

En Kvistur er undan gæðingshestum sem hafa sannað sig bæði í keppni og ræktun.

Og ef eitthver er að hugsa um hvernig Kóróna hafi verið að blómstra þá kíkjið á þessa mynd og þið sjáið hana þar:

http://www.flickr.com/photos/s-lilje/2534096246/

Kóróna er undan ömmu Kvist í föður ætt.

logitech z-2300 THX certified (19 álit)

logitech z-2300 THX certified logitech z-2300
á eitt svona og þær eru svakalegar.
þær eru með total peak power 400 watts
hef aldrei þorað að láta volumið yfir um 55% nema að vera með heyrnahlífar eða eikka.
long throw keilan er virkilega LONG throw á að geta farið allt að 3-4 cm fram í kicki
http://youtube.com/watch?v=wwmlHGERPkg
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok