Sælir Hugarar.

Eins og sumir hafa ef til vill orðið varir við þá er ný vefstjórn í bænum.
Arnþór heiti ég og er að taka við af JReykdal sem hefur snúið sér að öðrum verkefnum hér hjá Símanum.

Hugi er stórt samfélag og það mun eflaust taka mig tíma að koma mér inn í allt.
Ég hlakka til að vinna við öflugasta vefsamfélag á Íslandi og vinna með ykkur Hugurum að gera enn betur.

Ef ykkur liggur eitthvað á hjarta, sendið mér línu á vefstjori@hugi.is.

með kveðju, Arnþór,
vefstjori@hugi.is