Jæja öllsömul, eins og þið hafi kannski tekið eftir þá hefur þetta áhugamál breyst talsvert í þessari viku. En þannig er það þegar maður fer að dunda sér smá, og fikta og breyta.

Nú skal ég byrja á því að telja upp þær breytingar sem ég hef gert núna, ég endurbætti ökumannslistann, breytti dagatalinu og sameinaði nokkra kubba ásamt því að setja inn stöðu ökumanna og setja upp stöðuna í spáleiknum inn. En meðal þess sem er nýtt er spáleikurinn og svo er kominn ný trivia kubbur.

En það sem ég vil spyrja ykkur er hvernig finnst ykkur þetta og hvað mætti meira gera eða breyta?