Vegna ábendingar sem barst stjórnendum /formula1 hefur verið ákveðið að fjarlægja Myndbandakubbinn. Einnig var myndakubburinn fjarlægður meðan verið er að kanna lögmæti hans. Strax og þessi beiðni kom var brugðist við, það verður að segja að það var brugðist við á misjafnan hátt.

Ultravox átti í samskiptum við þann sem kom með ábendinguna og leysti hann málið á góðan og öruggan hátt. Ég verð samt sem áður að játa á mig glappaskot í starfi og hér með ætla ég að biðjast afsökunar á því hvernig ég brást við. Það var rangt af mér að fara með þetta á aðra síðu og þar með koma slæmu orði á þann sem kom með þessar ábendingar.

Við vonum innilega að þessi myndakubbur sé löglegur og fái að koma aftur, en ljóst er að við munum ekki koma með myndbandakubbinn aftur.

Að lokum vill ég biðja notendur að gæti þess að geta heimilda, bæði með efni í greinar og einnig myndir sem þeim fylgir. Að lokum vil ég benda á að héðan í frá verða greinar sem innihalda mynd af merki Formúlu 1 ekki samþykktar þar sem aðrir rétthafar eru á því merki og þar með óheimilt að birta það hér.

Kær kveðja,
Fusion Lorus