Mér datt í hug að setja þetta inn, menn vita kannski ekki hvernig við samþykkjum.

Allar greinar sem eru vitbærar og frambærilegar og tengjast F1 komast í gegn þó undantekningar séu á öllu. Endilega sendið inn greinar því það er alltaf gaman að lesa nýjar greinar.

Kannanir, undanfarið hafa borist nokkrar kannanir hingað inn og eins og staðan er núna eru 10 kannanir í bið. Þannig að það er flott ef þið viljið senda inn kannanir en þær koma ekki alveg strax svo betra er að hafa þær um víðtækara efni en einhverja keppni.

Svo eru það myndirnar alltaf er gaman að skoða nýja og nýja mynd, við reynum ef hægt er að samþykkja eina til tvær myndir á dag og heldur það talsverðu lífi í sumum áhugamálum t.d. bílar.

Svona að lokum vill ég benda á að spam eða fjöldasendingar eru ekki vel liðnar, það er allt í lagi að senda stöku sinnum tvær myndir í einu en þegar menn gera það nær alltaf eða senda fleiri myndir en það er öllu hafnað. Þetta á auðvita ekki bara við myndir, líka kannanir en greinar eru undantekning á því.. þið megið senda eins mikið af greinum og þið viljið!