Jæja, þá fer að nálgast í næsta keppnistímabil Formúlunnar, sem flestir hér inni eru búnir að bíða eftir. Við stjórnendur /formula1 vorum að spá í að hafa keppni (sem er skilgreind m.a í grein hér á vinstri hlið síðunnar), en erum í vandræðum með hvað notendur myndu vilja fá í verðlaun. Ég varpa því boltanum til ykkar notenda hér á þessu áhugamáli, hvað þið mynduð vilja fá í verðlaun. Skjótiði á okkur commentum og við reynum svo að vinna sem best úr þessu.
Með kappaksturskveðju:

Aiwa og FusionLorus, stjórnendur á Formula1 áhugamálinu!