Enn harðnar keppnin um titil ökuþóra eftir æsispennandi keppni á Nürburgring. Það gerist ekki oft núorðið að keppnir séu stöðvaðar, en það gerðist síðast og náði nýliði forystu í keppninni rétt fyrir ræsingu, þó hann hafi ekki náð að halda henni eftir endurræsinguna.

Næsta keppni fer svo fram á Hungaroring í Ungverjalandi og er vonandi að þar verði hörkuspennandi kappakstur, þó líklegast verði ekki jafn mikil dramatík og í síðustu keppni.

Eins og áður er mikil keppni einnig í spáleiknum og verður hann uppfærður á allra næstu dögum.
Það skiptir miklu máli að taka þátt til að haldast í baráttunni um spámeistarann 2007 og enn meira máli skiptir að tryggja sér bónusinn, s.s. skila inn spá fyrir miðnætti á fimmtudaginn 2. ágúst!
Lokaskilafrestur er svo til upphafs tímatökunnar þann 4. ágúst.
Kveðja,