Jæja notendur góðir. Nú er komið að fyrsta mótinu á þessu keppnistímabili. Spáleikurinn verður hafður með svipuðu móti og síðasta ár, þ.e þið veðjið á 10 úrslitasæti í tímatökunni og svo aftur 10 efstu sætin í keppninni í næstu grein sem mun þá væntanlega heita “Keppnin í Melbourne”

Mannabreytingar hafa verið í öndvegi fyrir þetta árið, liðin hreinlega búin að skipta út mannskap eins og regndekkjum á þurri braut :)

Endilega veðjið nú á ykkar menn, ykkar lið eða bara eftir ykkar höfði.

Eftir ástralska kappaksturinn mun verða settur upp kubbur sem sýna stig notenda í kappakstrinum líkt og í fyrra.

Þá verða gefin 1 stig fyrir rétt sæti í tímatökunni og 0 stig fyrir rangt.

Í keppnum verða gefin 3 stig fyrir rétt sæti og 1 stig fyrir +- eitt sæti.


Látið nú vaða kæru notendur, þið hafið frest til miðnættis á föstudag líkt og þetta var í fyrra!