Ég verð nú að tjá mig um þessa fáránlegustu könnun sem ég hef séð í langan tíma. Í fyrsta lagi þá eru þetta fáránlega fáir möguleikar og hefði verið fínt að vera með “annar” sem möguleika. Líka er það þessi hörmungar stafsetning á mönnunum, það er M.Schumacher en ekki M.shumacer, Häkkinen en ekki Hakkinen, R.Schumacher en ekki R.shumacer og síðan er það Coulthard en ekki cultard.
Ég er ekki að að vera með leiðindi en mér finnst að fólk ætti að passa sig á hvaða bull kemst hér í gegn og ef fólk getur ekki gert svona basic tjékk á stafsetningu hjá sér þá á það ekkert að reyna við svona flókin verkefni eins og að setja inn könnun.
Ég veit að fólk hér á huga er þreytt á leiðréttingum á stafsetningarvillum en mér finnst þetta alveg fyrir neðan allar hellur.. :) <br><br>johnnyboy
johnnyboy