Starfsmenn Prostliðsins hafa beðið vongóðir eftir lausn í þann mikla tíma sem greiðslustöðvun liðsins hefur staðið yfir. Nú fer að nálgast úrslitadaginn en í gær (mánudag 21 jan.) var Alain Prost á fundi með skiptastjóra.


Lokadagurinn fyrir Prostliðið til að leggja fram einhver tilboð eða aðrar úrlausnir í peningamálum rann upp þann 15. janúar síðastliðinn. Sama daginn fékk liðið tilboð, en eru sögur af því hvort um hóp franskra eða ítalskra fjármálamanna hafi verið – nema hvort tveggja sé. Ekkert fékkst uppgefið hjá liðinu um þessi tilboð – eingöngu að tilboð hefðu borist.