Liðsstjórar Super Aguri liðsins hafa ákveðið að draga liðið úr keppni í Formúlu 1 árið 2008 eftir að óvissa um framtíð liðsins fór að gera vart við sig og þau tilboð sem bárust í von um að bjarga liðinu reyndust ekki vera nógu góð.

Þetta eru slæm tíðindi fyrir formúluna í ár, þó svo Super Aguri liðið hafi ekki verið í toppbáráttunni, þar sem það munar um hvern bíl sem keppir og því nokkuð ljóst að þær keppnir sem eftir eru í ár verða ögn bragðdaufari fyrir vikið.
Það er þó vonandi að keppnin á toppnum verði harðari fyrir vikið og að hin liðin sem hingað til hafa vermt botninn taki sig á og geri enn harðari atlögu að toppliðunum.

Sjá frétt um málið á síðu formula1.com um málið.
Kveðja,