Gott fólk Það vita kannski ekki allir hver ungi maðurinn Viktor Jensen er, en hann er með bestu ökumönnum landsins. Já, Viktor hefur verið að keppa fyrir hönd Íslands í Formula Palmer Audi keppnunum.

Í fyrstu keppni ársins 2006 gekk honum frábærlega og endaði í öðru sæti, ótrúlegur árangur fyrir 18 ára dreng. Þó virtist hann ekki hafa sætt sig við silfur því að í morgun sigraði Viktor Formula Palmer Audi keppnina og var Íslensku þjóð okkar til sóma. Viktor er afar stoltur af Íslenskum uppruna sínum og hefur í langan tíma keppt undir íslenska fánanum.

Spurning hvort að við fáum að sjá drenginn keyra á okkar eigin íslensku kappakstursbraut innan skamms

Meira um FPA: http://www.clubfpa.co.uk/index.aspx
Kv. Pottlok